Tveir doktorsnemar af Hugvísindasviði fengu vísindastyrki

Tólf doktorsnemar við Háskóla Íslands, þar af tveir af Hugvísindasviði, fengu nýverið úthlutað vísindastyrkjum að upphæð 40 milljónir króna úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags Íslands. Um er að ræða aukaúthlutun í tilefni af aldarafmæli háskólans. Doktorsnemarnir tveir af Hugvísindasviði eru Anna Jeeves og Guðbjörg Rannveig Jóhannesdóttir.

Anna Jeeves leggur stund á nám við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda. Í doktorsverkefni sínu fjallar hún um gildi enskunáms í breyttu málumhverfi á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar er að kanna viðhorf ungra Íslendinga til gildis enskunáms og til eiginenskuþarfa í háskólanámi og í daglegu lífi. Þá verður enskunotkun þátttakenda könnuð og athugaðhvernig þeir nota málið í daglegu lífi. Út frá þeim gögnum sem þar safnast er sóst eftir því að geranemendum betur kleift að nota enskuna í heimi þar sem hún er orðinaðalsamskiptamálið. Rannsóknin mun varpa ljósi á hugsanlega gjá á milli ímyndaðra enskuþarfa ískóla og raunverulegra enskuþarfa eftir að námi lýkur. Lítið hefur verið fjallað um gildi tungumálanámsog verður rannsókn þessi mikilvægt innlegg í alþjóðlega umræðu um hugmyndir málhafa um sjálfa sig. Leiðbeinandi Önnu er Birna Arnbjörnsdóttir, prófessor við Deild erlendra tungumála, bókmennta og málvísinda.

Guðbjörg Rannveig Jóhannesdóttir stundar nám í sagnfræði- og heimspekideild og fjallar um fagurfræði og verndargildi íslensks landslags í verkefni sínu. Markmið verkefnisins er að öðlast dýpri skilning á merkingu landslags og þeim gildum sem eru tengdvið fagurfræðilega upplifun af íslensku landslagi. Rannsóknin byggist bæði á aðferðum fagurfræði náttúrunnar og fyrirbærafræðilegum/eigindlegum rannsóknaraðferðum.  Ætlunin er í fyrsta lagi aðrannsaka hugtökin landslag, fegurð og fagurfræði frá fyrirbærafræðilegu sjónarhorni. Í öðru lagi munverkefnið snúa að rannsókn á raunverulegum fagurfræðilegum upplifunum af tveimur landslagsgerðumsem einkenna Ísland sérstaklega, háhitasvæðum og jöklum. Þar er notast við fyrirbærafræðilegar ogeigindlegar rannsóknaraðferðir.Leiðbeinandi Guðbjargar er Sigríður Þorgeirsdóttir, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild

deila á facebook