Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands verður með skemmtilegan viðburð á Austurvelli í dag, 13. október. Þar munu fulltrúar deildarinnar slá upp tjaldi og ræða við gesti og gangandi um fræðin og rannsóknir í deildinni. Viðburðurinn er liður í hátíðahöldum Félagsvísindasviðs vegna aldarafmælis Háskóla Íslands. Hann hefst kl. 15 og lýkur kl. 18.
Á staðnum verða fulltrúar blaða- og fréttamennsku, bókasafns- og upplýsingafræði, félagsfræði, fötlunarfræði, mannfræði, náms- og starfsráðgjafar, safnafræði og þjóðfræði. Á hálftímafresti mun svo fulltrúi frá flestum þessara greina stíga upp á kassa og flytja stutt erindi um sín fræði. Efni erindinna er sem hér segir:
15.30 Frelsi til upplýsinga
16.00 Fjölmiðlar. Drottnandi þjónar?
16.30 Orðum Reykjavík
17.00 Raddir innflytjenda
17.30 Löggulíf
Boðið verður uppá rafræna upplýsingaþjónustu og áhugakannanir um náms- og starfsval. Þá verður heitt á könnunni í tjaldinu og eru allir boðnir velkomnir í heimsókn.
Tjaldspjall á Austurvelli í dag
