„Með þessum samningi skapast margvísleg tækifæri fyrir deildina og nemendur hennar til að styrkja og efla alþjóðlegt samstarf á sviði lögfræði“ segir Róbert Spanó, prófessor og forseti Lagadeildar Háskóla Íslands, um undirritun samstarfssamnings um doktosnám á milli Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla sem fram fer í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 11.00, föstudaginn 3. febrúar.
Lagadeild Kaupmannahafnarháskóla er ein fremsta deild sinnar tegundar á Norðurlöndum og með sameiginlegu doktorsnámi á ensku verður Lagadeild Háskóla Íslands beinn þátttakandi í afar fjölbreyttu og spennandi rannsóknarumhverfi.
„Samningurinn er liður í þeirri stefnu deildarinnar að efla tengsl hennar og samstarf á alþjóðavettvangi samhliða því að styrkja innviði hennar með öflugu doktorsnámi. Við gerum ráð fyrir því að samstarf deildanna verði mikið á næstu árum og ekki er útilokað að frekari ákvarðanir verði teknar um samstarf deildanna á öðrum sviðum. Undirritun samningsins markar því sannarlega tímamót í lagakennslu hér á landi og verður vonandi til að efla enn frekar starf Lagadeildar Háskóla Íslands“ segir Róbert.
