Tilnefndar til bókmenntaverðlauna

Bækur þriggja fræðimanna af Hugvísindasviði Háskóla Íslands voru nýverið tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2011. Annars vegar er um að ræða bækurnar Morkinskinnu (í tveimur bindum) í útgáfu Ármanns Jakobssonar, dósents í íslenskum bókmenntum fyrri alda, og Þórðar Inga Guðjónssonar, ritstjóra Íslenzkra fornrita og doktorsnema, og hins vegar Landnám – ævisaga Gunnars Gunnarssonar eftir Jón Yngva Jóhannsson, stundakennara við Íslensku- og menningardeild. Bækurnar voru tilnefndar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis.

Morkinskinna er mikið konungasagnarit frá fyrri hluta 13. aldar og greinir frá þeim konungum sem ríktu í Noregi eftir fall Ólafs helga á Stiklarstöðum árið 1030. Hér er á ferð elsta rit þar sem saga margra konunga er rakin ítarlega. Morkinskinna gerist einkum við norsku hirðina, og mikill áhugi er þar á hirðmenningu og hirðlífi. Ein höfuðprýði Morkinskinnu eru hinar mörgu frásagnir af samskiptum konunga við Íslendinga sem dveljast í Noregi, hinir svonefndu Íslendinga þættir. Sumir þáttanna eru meðal meistaraverka íslenskra bókmennta. Í útgáfu þeirra Ármanns Jakobssonar og Þórðar Inga Guðjónssonar er Morkinskinna í fyrsta sinn gerð aðgengileg íslenskum almenningi, með ítarlegum formála og skýringum.

Landnám – ævisaga Gunnars Gunnarssonar fjallar um Gunnar Gunnarsson, einn mest lesna íslenska rithöfund á 20. öld. Jón Yngvi Jóhannsson byggir ævisögu Gunnars á umfangsmikilli könnun heimilda, fyrst og fremst íslenskra og danskra en einnig á samskiptum Gunnars við þýskan bókmenntaheim og þýsk yfirvöld. Hann fjallar hispurslaust um einkalíf Gunnars og tekur skáldverk hans til rækilegrar umfjöllunar og endurmats.

deila á facebook