Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.
Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Síðustu fimm ár hefur sá háttur verið hafður á að viðurkenningarráð Hagþenkis, sem skipað er fimm félagsmönnum, tilnefnir tíu framúrskarandi höfunda og bækur og einn þeirra hlýtur hnossið.
Í lok janúar kom í ljós hverjir hefðu hlotið tilnefningu fyrir verk sín á síðasta ári. Meðal þeirra tíu sem tilnefndir eru, eru fjórir fræðimenn sem starfað hafa við Háskóla Íslands. Það eru:
- Erla Hulda Halldórsdóttir, sem nýverið lauk doktorsprófi frá við Sagnfræði- og heimspekideild, fyrir bókina „Nútímans konur. Menntun kvenna og mótun kyngervis á Íslandi 1850-1903“. Bókin er doktorsverkefni Erlu Huldu en um hana segir viðurkenningarráð Hagþenkis: „Skörp og lipur greining á því hvernig íslenska nútímakonan varð til, verk unnið af næmni og djúpri þekkingu á viðfangsefninu“. Þess má geta að bók Erlu Huldu er einnig tilnefnd til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, í flokki fræðirita.
- Jón Yngvi Jóhannsson, stundakennari við Íslensku og menningardeild, fyrir bókina „Landnám. Ævisaga Gunnars Gunnarssonar“. Í umsögn viðurkenningarráðs segir: „Heildstæð úttekt á lífi og list eins merkasta rithöfundar Íslendinga sem sýnir manninn og lífsverk hans í nýju og skarpara ljósi.“ Bók Jóns Yngva var einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2011 í flokki fræðibóka og rita almenns efnis.
- Ólafur Kvaran, prófessor í listasögu við Kennaradeild, fyrir ritstjórn verksins „Íslensk listasaga I-V frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar“. Viðurkenningarráð Hagþenkis segir um verkið: „Grundvallarrit, unnið af faglegum metnaði höfunda sem leiða á aðgengilegan hátt í ljós hugmyndafræðilegt og samfélagslegt samhengi í þróun myndlistar á Íslandi.“
- Pétur Pétursson, prófessor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild, fyrir bókina „Trúmaður á tímamótum. Ævisaga Haralds Níelssonar“. Í umsögn viðurkenningarráðs segir um bókina: „Fróðleg og greinandi frásögn af lífshlaupi Haralds, trúarlífi hans og fræðistörfum, þar sem umróti í trúarlífi landsmanna og hlut hans í því eru gerð góð skil.“
Tilkynnt verður um það um næstu mánaðamót hver hlýtur viðurkenningu Hagþenkis en hún felst í sérstöku heiðursskjali og verðlaunafé að upphæð einni miljón króna.
