Skip to main content
4. febrúar 2016

Þrjú hlutu framgang í starf dósents

""

Þrír starfsmenn við Heilbrigðisvísindasvið hafa nýverið hlotið framgang í starfi í samræmi við reglur um framgang og ótímabundna ráðningu akademískra starfsmanna við Háskóla Íslands.

Kristjana Einarsdóttir hlaut framgang í starf dósents við Miðstöð í lýðheilsuvísindum við Læknadeild og við Matvæla- og næringarfræðideild. Framgangurinn tók gildi 17. ágúst 2015.

Lárus Steinþór Guðmundsson hlaut framgang í starf dósents við Lyfjafræðideild. Framgangurinn tók gildi 1. júlí 2015.

Þorvarður Jón Löve hlaut framgang í starf dósents við Læknadeild. Framgangurinn tók gildi 1. janúar 2016.

Við óskum þeim farsældar í starfi á Heilbrigðisvísindasviði. 

Kristjana Einarsdóttir, dósent við Læknadeild og Matvæla- og næringarfræðideild, Lárus S. Guðmundsson, dósent við Lyfjafræðideild og Þorvarður J. Löve, dósent við Læknadeild. (Samsett mynd).