Skip to main content
10. mars 2015

Þrjú eru í framboði til rektors Háskóla Íslands

Þrjár umsóknir bárust um embætti rektors Háskóla Íslands og uppfylla allir umsækjendur skilyrði um embættisgengi samkvæmt ákvörðun háskólaráðs. Ráðið hefur jafnframt skipað kjörstjórn vegna rektorskosninganna.

Umsóknarfrestur um embætti rektors rann út mánudaginn 9. mars og bárust umsóknir frá Einari Steingrímssyni, prófessor við University of Strathclyde í Skotlandi, Guðrúnu Nordal, prófessor og forstöðumanni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, og Jóni Atla Benediktssyni, prófessor og aðstoðarrektor Háskóla Íslands. Samkvæmt reglum Háskóla Íslands ber háskólaráði að kanna hvort umsækjendur uppfylli skilyrði um embættisgengi en embættisgengir eru þeir einir sem hafa prófessorshæfi, leiðtogahæfilega og skýra og metnaðarfulla framtíðarsýn fyrir háskólann, ríka samskiptahæfni og víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun. Á fundi háskólaráðs í dag var farið yfir umsóknirnar þrjár og teljast allir umsækjendur uppfylla skilyrði um embættisgengi til rektors.

Á fundinum í dag skipaði háskólaráð enn fremur kjörstjórn vegna kosninganna. Verkefni kjörstjórnar er að hafa fyrir hönd háskólaráðs umsjón með gerð kjörskrár, ákveða kjördag, annast framkvæmd kosningarinnar, úrskurða í kærumálum vegna hennar, sjá um utankjörfundaratkvæðagreiðslu og annað er að kosningunni lýtur. Skal rektorskjör fara fram eigi síðar en sex vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út.

Í kjörstjórn sitja:
Björg Thorarensen, prófessor, formaður
Hjálmtýr Hafsteinsson, dósent
Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor
Trausti Fannar Valsson, lektor
Bergþór Bergsson, stúdent
Álfrún Perla Baldursdóttir, stúdent

Unnið er að uppsetningu upplýsingasíðna, bæði á vef Háskóla Íslands og á innri vef skólans, Uglu, fyrir kjósendur í rektorskosningunum og verða þær kynntar á næstu dögum.