Skip to main content
22. júní 2015

Þrír með ágætiseinkunn frá Hagfræðideild

Brautskráning Háskóla Íslands fór fram laugardaginn 20. júní síðastliðinn við hátíðlega athöfn í Laugardalshöll. Alls brautskráðust 19 kandídatar frá Hagfræðideild, þar af 18 úr grunnnámi og einn úr meistaranámi.

Þrír kandídatar brautskráðust með ágætiseinkunn frá deildinni. Það voru þeir Ólafur Heiðar Helgason, Jón Guðjónsson og Þorkell Hólm Eyjólfsson með BS í hagfræði.  

Kennarar og starfsfólk Hagfræðideildar óskar öllum kandídötum innilega til hamingju með áfangann.

Jón Guðjónsson, Ólafur Heiðar Helgason, Tór Einarsson og Þorkell Hólm Eyjólfsson.
Jón Guðjónsson, Ólafur Heiðar Helgason, Tór Einarsson og Þorkell Hólm Eyjólfsson.