Hugvísindasvið Háskóla Íslands veitti þremur fræðimönnum heiðursdoktorsnafnbót við athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 1. desember síðastliðinn. Heiðursdoktorsnafnbætur hlutu þau Jóhann Páll Árnason í heimspeki, Marianne E. Kalinke í íslenskum miðaldabókmenntum og Kari Elisabeth Børresen í guðfræði.
Einn heiðursdoktor var kjörinn í hverri þeirra þriggja fræðagreina hugvísinda sem eiga samfellda aldarsögu innan Háskóla Íslands, það er að segja í norrænum fræðum, guðfræði og heimspeki.
Jóhann Páll Árnason er prófessor emeritus í samfélagskenningum við La Trobe-háskóla í Ástralíu. Hann hefur kennt og starfað við háskóla og virtar fræðastofnanir í París, Uppsölum, Japan og víðar. Jóhann er líkast til sá íslenski hugsuður sem kunnastur er á alþjóðlegum fræðavettvangi, enda hefur hann gefið út fjölda bóka og greina á ensku, þýsku, frönsku og tékknesku, auk þess sem verk hans hafa verið þýdd á fleiri tungumál. Hann hefur verið einn ritstjóra ThesisEleven sem er víðlesið tímarit á sviði gagnrýninna samfélagskenninga.
Marianne E. Kalinke er prófessor emerita við Illinoisháskóla í Urbana og Champaign. Hennar helsta rannsóknarsvið eru menningarleg tengsl milli Norðurlanda og meginlands Evrópu og hún hefur lagt mikinn skerf fram til eins vanræktasta sviðs íslenskra miðaldabókmennta, þ.e. þýðinga á riddarasögum og helgisögum. Hún hefur ritað og ritstýrt fjölda bóka á sviði norrænna miðaldabókmennta. Hún hefur margoft setið í dómnefndum og unnið önnur störf fyrir Háskóla Íslands auk þess sem hún hefur verið nánast árviss gestur á Árnastofnun áratugum saman. Hjá Marianne Kalinke fara saman mikil og einlæg vinátta við Ísland og Íslendinga, sérstök ræktarsemi við Háskóla Íslands, öguð og vönduð fræðimennska og nýsköpun á fræðasviðinu.
Kari Elisabeth Børresen er prófessor emerita við Guðfræðideild Oslóarháskóla. Hún er sérfræðingur á sviði sögulegrar vestrænnar guðfræði- og kirkjusögu með sérstakri áherslu á kvenna- og kynjafræði. Hún hefur m.a. stundað rannsóknir við margar háskóla- og rannsóknarstofnanir, s.s. Sorbonne, Poiters, Heidelberg, Mainz, Oxford og Róm, er meðlimur í öllum helstu fræðafélögum á sínu sviði og hefur tekið mikinn þátt í alþjóðlegu rannsóknarsamstarfi. Børresen er án efa einn virtasti guðfræðingur innan háskólasamfélagsins á Norðurlöndum. Sérstaða hennar er kvenna- og kynjafræðilegt sjónarhorn rannsókna hennar á kristna guðfræðisögu en þar er hún brautryðjandi, ekki aðeins á Norðurlöndum heldur í alþjóðlegu samhengi.
