Hagfræðideild Háskóla Íslands býður öllum áhugamönnum um hagfræði og efnahagsmál að sækja sér að kostnaðarlausu háskólafyrirlestra í þjóðhagfræði handa byrjendum. Þetta er fjórða árið sem Hagfræðideild býður þjóðinni í þakkarskyni að sækja fyrirlestrana.
Þjóðhagfræði I er inngangsnámskeið og krefst ekki sérstaks undirbúnings umfram almenna menntun til stúdentsprófs eða samsvarandi. Til að áhugasamir gestir geti nýtt sér kennsluna sem best verður upplýsingavefur námskeiðsins hafður opinn og aðgengilegur öllum. Þar verður hægt að nálgast glærur og annað ítarefni tengt fyrirlestrunum og upplýsingar um efni þeirra. Vefslóðin verður kynnt á námskeiðinu.
Fyrirlesarinn er Þorvaldur Gylfason prófessor, og heldur hann fyrirlestra sína tvisvar í viku, á þriðjudögum kl. 10:00-11:30 og á miðvikudaögum kl. 11:40-13:10 í sal HT-102 á Háskólatorgi. Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn þriðjudaginn 6. september kl. 10:00.
