Nemendur í þjóðfræði við Háskóla Íslands standa fyrir áhugaverðri bíósýningu í Bíó Paradís í dag, 20. október, kl. 15 undir yfirskriftinni „Þjóðfræði í mynd“. Þar verða frumsýndir níu stuttir þættir sem tengjast umfjöllunarefnum í BA- og MA-ritgerðum við deildina. Efni þáttanna spannar allt frá bollaspádómum og húsmæðraskólum til lífræns matar og hjálækninga óperusöngvarar.
Þættirnir eru hver um sig 10-15 mínútur og þar er rætt við höfunda ritgerðanna, fræðimenn og aðra sem að efninu koma. Um er að ræða tilraun til þess að miðla með einföldum og aðgengilegum hætti út í samfélagið þeirri þekkingu sem verður til innan veggja háskólans. Hægt verður að nálgst þættina frítt á Netinu á vimeo.com (undir „Þjóðfræði í mynd“) þegar fram líða stundir.
Þjóðfræðinemarnir Björk Hólm og Ólafur Ingibergsson hófu vinnu við verkefnið árið 2010 með styrk frá Nýsköpunarsjóði námsmanna og unnu þá fimm þætti. Í sumar bættist verkefninu svo liðsstyrkur frá Áslaugu Einarsdóttur mannfræðinema og kvikmyndagerðarkonu sem ráðin var að verkefninu í gegnum vinnuátaksverkefni Vinnumálastofnunar. Afrakstur samstarfsins var níu þættir sem frumsýndir verða í dag sem fyrr segir. Sýningin er öllum opin og ókeypis.
Frekari upplýsingar um efni þáttanna er að finna á Fésbókarsíðu sýningarinnnar.
Viðtal við Björk og Ólaf um verkefnið má sjá á afmælisvef Háskóla Íslands.
