Eldri nemar mæla langstökk nýnema
Starfsfólk Íþróttafræðasetursins á Laugarvatni tók á móti nýnemum mánudaginn 23. ágúst. Þeir sem búa á Vatnagarði fengu lykla sína afhenta milli 9 og 11 og klukkan 11 var svo kynning á náminu, skólanum og staðnum með formanni námsbrautar, skrifstofustjóra og umsjónarmanni fasteigna. Að því loknu fóru nýnemar í kynnisferð í íþróttahúsið og sundlaugina. Eftir hádegi tóku svo við hefðbundar mælingar þar sem byrjað var á heilsufars- og holdafarsmælingum. Að þeim loknum var sundgeta nemenda könnuð. Því næst voru mælingar á styrk, snerpu, hraða og vöðvaúthaldi og að lokum var þrek nemendanna svo mælt úti á íþróttavelli.
Dagurinn tókst mjög vel, nýnemar lögðu sig fram í mælingunum og almennt leist starfsfólki mjög vel á þennan hóp nýnema og vænta mikils af honum.
1.9.2010 14:03
Kynna samstarf á...
Opinberu háskólarnir fjórir, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Hólaskóli - Háskólinn á Hólum og Landbúnaðarháskóli Íslands, kynna samstarf sitt og sameiginlegt námsframboð í Háskólabíói á Háskóladeginum sem fram fer laugardaginn 18. febrúar kl. 12-16.
Tveir harðir sigruðu í...
Liðið Tveir harðir, sem skipað er þeim Saulius Genutis, nemanda í vélaverkfræði við Háskóla Íslands, og Jóni Björgvini Jónssyni, nemanda úr Véltækniskólanum, sigraði í hinni árlegu Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands á föstudaginn var. Þeir félagar sigruðu einnig...
Tilnefnd til...
Fjögur ritverk eftir fræðimenn, sem starfað hafa við Háskóla Íslands, eru meðal þeirra tíu fræðirita sem tilnefnd eru til viðurkenningar Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, árið 2011.
Allt frá árinu 1987 hefur Hagþenkir veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, kennslugögn eða...
Hönnunarkeppni verkfræðinema...
Hin árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands fer fram í dag, föstudaginn 8. febrúar, kl. 13 í sal 1 í Háskólabíói.
Nemendur og kennarar í verkfræði við Háskóla Íslands standa saman að keppninni. Sú samvinna hefur árlega skilað skemmtilegri og spennandi...