Nú í haust hófst kennsla í talmeinafræði á meistarastigi við Háskóla Íslands. Námið er skipulagt sameiginlega af Menntavísindasviði, Íslensku- og menningardeild á Hugvísindasviði og Læknadeild og Sálfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði. Læknadeild hefur umsjón með náminu og brautskrást nemendur þaðan. Heyrnar- og talmeinastöð styrkir námsbrautina með stöðu stundakennara auk þess að hafa yfirumsjón með starfsþjálfun nemenda.
Meistaranám í talmeinafræði er þverfræðilegt nám sem miðar að því að veita vísindalega þjálfun og búa nemendur fyrst og fremst undir störf talmeinafræðinga á ýmsum vettvangi og vísindastörf af ýmsu tagi. Námið er 120 einingar og skiptist í 30 eininga lokaverkefni, námskeið á fram-haldsnámsstigi, málstofur og starfsþjálfun. Áætlað er að tekið verði inn í námið annað hvert ár og takmarkast fjöldi nýrra nemenda við töluna 15.
Við upphaf misseris efndu aðstandendur meistaranáms í talmeinafræði til móttöku í Læknagarði fyrir nemendur, námsstjórn og ýmsa velunnara.
