Aukinn vegur doktorsnáms við Háskóla Íslands og vaxandi samstarf við erlenda háskóla um menntun doktorsnema er meginumfjöllunarefni Kristínar Ingólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í nýjum pistli sem hún ritar á heimasíðu sína.
Rektor gerir nýgerðan samning Lagadeildar Háskóla Íslands og Lagadeildar Kaupmannahafnarháskóla um samstarf á sviði doktorsnáms í lögfræði að umtalsefni og bendir á að þetta sé í fyrsta sinn sem lagadeildir á Norðurlöndum sameina krafta sína með þessum hætti. „Samningur af þessu tagi skapar ný og afar spennandi tækifæri fyrir þá sem hyggja á doktorsnám, leiðbeinendur þeirra og háskólana í heild,“ segir rektor og bendir jafnframt á að Háskóli Íslands hafi nú þegar allnokkra reynslu af sameiginlegum doktorsgráðum með evrópskum og bandarískum háskólum.
Rektor vekur athygli á því að doktorsverkefni sem unnin eru sameiginlega frá tveimur eða fleiri háskólum séu stundum í samstarfi við atvinnulíf og það veiti aukna vídd og reynslu viðkomandi fræðigreinum, „styður við hagnýtingu nýrrar þekkingar og víkkar menningarlegan sjóndeildarhring nemendanna.“
Þá sé samstarf um doktorsnám við aðra háskóla sé ekki síður spennandi kostur fyrir leiðbeinendur og skapi margvísleg tækifæri. „Við úrlausn flókinna og ögrandi verkefna er oft mikilvægt að saman komi fólk með ólíkan bakgrunn. Á undanförnum árum hefur alþjóðlegt samstarf aukist mikið milli einstaka rannsakenda. Erlendir nemendur hafa í vaxandi mæli sóst eftir að leggja stund á doktorsnám við Háskóla Íslands, ekki síst í greinum þar sem skólinn stendur vel að vígi og þar sem leiðbeinendur eru þekktir á alþjóðavettvangi. Þessir nemendur hafa ólíkan menntunar- og menningarlegan bakgrunn og koma oft með nýja nálgun og nýjar lausnir. Þessi þróun skapar fjölbreytni í starfi Háskóla Íslands, sem íslenskir stúdentar og starfsfólk njóta góðs af,“ segir rektor enn fremur.
