SVF á tímamótum

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum efnir til málþings um norrænar tungumála- og menningarrannsóknir í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands. Málþingið verður haldið dagana 27. og 28. október í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins. Hægt er að nálgast dagskrá þingsins á heimasíðu stofnunarinnar.  

Ráðstefna í tilefni aldarafmælis HÍ

Auður Hauksdóttir er forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Hún segir aðaltilefni ráðstefnunnar vera 100 ára afmæli Háskóla Íslands: ,,Á tímamótum viljum við horfa fram á veginn og móta stefnu fyrir norrænar tungumála- og menningarrannsóknir, en þær skipta miklu máli í sjálfu sér og einnig til að viðhalda og styrkja samstarf okkar við þær þjóðir sem okkur eru skyldastar og sem við eigum mest samstarf við. Á málþinginu leggjum við meðal annars áherslu á tjáskipti á norrænum málum og notkun máltækni, orðaforðanám og orðaforðarannsóknir og bókmenntir. Við ætluðum okkur að hafa þýðingar með, en tímaramminn leyfði það ekki.“ Málþingið er liður í því að viðhalda og efla norrænar tungumála- og menningarrannsóknir. Vonast er til að í kjölfar þingsins verði sett af stað rannsóknaverkefni, meðal annars í samvinnu við þá aðila sem sækja þingið. Afrakstur málþingsins eigi að varða veginn fyrir framtíðarrannsóknir innan Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur á framangreindum sviðum. 

Auður segir stofnunina nú þegar eiga í miklu samstarfi við norræna fræðimenn og rannsóknastofnanir og það samstarf vilji starfsfólk stofnunarinnar efla enn frekar. Fræðimenn sem flytja erindi á ráðstefnunni eru margir hverjir fremstir á sínu sviði. Aðspurð segir Auður það til vitnis um að fræðimenn Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur eiga samstarf við virta fræðimenn á Norðurlöndum og raunar víða: ,,Flestir okkar fræðimanna, hvort heldur þeir sem leggja stund á rannsóknir í tengslum við römönsk mál, þýsku eða Asíumál hafa lokið framhaldsnámi við erlenda háskóla og kynnst þar fræðimönnum í fremstu röð á sínu sviði.“ 

Erlendir fræðimenn sem taka til máls á ráðstefnunni eru m.a. Anju Saxena, prófessor við Uppsalaháskóla, Jens Allwood, prófessor við Gautaborgarháskóla, Brit Mæhlum, prófessor við NTNU í Þrándheimi, Ulla Börestam, dósent við Uppsalaháskóla, Anne Holmen, prófessor við Hafnarháskóla,  Lars Borin við Gautaborgarháskóla og Turið Sigurðardóttir, prófessor í færeyskum bókmenntum við Fróðskaparsetur Færeyja og prófessor Jørn Lund, sem er aðalfyrirlesari á málþinginu.

Jørn Lund hefur um árabil verið forstöðumaður Det Danske Sprog og Litteraturselskab í Danmörku, en lét af störfum fyrir nokkrum vikum. Hann hefur fengist við rannsóknir á dönsku máli og menningu og sýnt norrænum tungumálarannsóknum og -samstarfi mikinn áhuga og reynst stofnuninni einstakur bakhjarl. Anju Saxena og Jens Allwood eru bæði þróttmiklir og virtir fræðimenn. Þau hafa um langt skeið unnið með Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, fyrst í netsamstarfi um notkun máltækni við kennslu, rannsóknir og þýðingar á norrænum tungumálum, en síðar hafa þau átt sæti í ráðgjafanefnd, sem vinnur að undirbúningi alþjóðlegu tungumálamiðstöðvarinnar. Anju Saxena hefur unnið að tungumála- og menningarrannsóknum í Himalayafjöllunum. Brit Mæhlum fæst við rannsóknir á tungu og menningu Sama. Ulla Börestam hefur unnið gagnmerkar rannsóknir á málskilningi milli Skandinava og Anne Holmen er í fremstu röð á Norðurlöndum í annarsmálsfræðum. Ég get ekki látið hjá líða að nefna að ég var svo lánsöm að njóta leiðsagnar Anne við doktorsverkefni mitt við Hafnarháskóla og fyrir það þakka ég í huganum á hverjum degi.  

Tíu ára afmæli stofnunarinnar

Um þessar mundir eru tíu ár liðin síðan stofnun Vigdísar Finnbogadóttur tók til starfa. Auður segir að á þeim tíma hafi tekist að efla rannsóknir til mikilla muna: ,,Um leið og innra starf hefur verið styrkt hefur verið lagt kapp á að móta framtíðarverkefni stofnunarinnar og skapa skilyrði til að hrinda þeim í framkvæmd. Við höfum hafið útgáfu á ritrýndu ársriti stofnunarinnar og útgáfa hefur eflst til mikilla muna að öðru leyti, við höfum staðið fyrir fjölmörgum alþjóðlegum ráðstefnum og margir fræðimanna okkar eru eftirsóttir fyrirlesarar á ráðstefnum erlendis.  Við höfum kynnt starfsemi stofnunarinnar og framtíðaráform víða um lönd og lagt drög að samstarfi við erlenda fræðimenn og stofnanir. Margir hafa lýst sig reiðubúna til að leggjast á árar með okkur og fjallað hefur verið um stofnunina og framtíðaráform hennar í stórum prentmiðlum víða um heim. Þá hefur okkur tekist að afla umtalsverðs fjár til að reisa byggingu, sem á að hýsa alla starfsemi stofnunarinnar, meðal annars hina metnaðarfullu alþjóðlegu tungumálamiðstöð.“ Auður segir að margt hafi áunnist vegna samstöðu og dugnaðar fagráðs stofnunarinnar og að stuðningur núverandi og fyrrverandi rektors og  sviðsforseta hafi verið ómetanlegur og jafnframt mikil hvatning.  

,,Það hefur líka skipt Háskólann gífurlega miklu máli að tengjast nafni Vigdísar Finnbogadóttur, þess Íslendings sem hvarvetna nýtur virðingar og velvildar fyrir glæsilega framgöngu sína jafnt heima sem heiman,“ segir Auður. ,,Í augum margra útlendinga er Vigdís táknmynd þess besta í íslenskri menningu; hún er heimsborgari, sem kann sig betur en flestir, meðal annars vegna yfirburða tungumála- og menningarþekkingar sinnar, hún er talsmaður mennta og vísindastarfs, hvetur til  jákvæðra samskipta fólks af ólíku þjóðerni og hún er óþreytandi að minna okkur á að leggja rækt við unga fólkið og hlúa að því sem skiptir máli fyrir komandi kynslóðir. Síðast en ekki síst er henni afar umhugað um veg íslenskrar tungu, bókmenntir okkar og menningu– þess dýrmætasta sem við eigum. Svo má ekki gleyma því að hún er heiðursdoktor við nær tuttugu háskóla í heiminum.“

Alþjóðleg tungumálamiðstöð

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur hefur í hyggju að reisa alþjóðlega tungumálamiðstöð á háskólalóðinni. Íslensk stjórnvöld hafa sótt um viðurkenningu á verkefninu til UNESCO og lokaafgreiðsla fer fram á ársfundi UNESCO sem nú stendur yfir. Auður segir að það yrði mikill áfangi fyrir verkefnið ef viðurkenningin fengist.

Það kostar rúmar 1.300 milljónir að reisa tungumálamiðstöðina og nú vantar einungis 150-200 milljónir til að fullfjármagna verkefnið. Auður segir að það hafi verið gaman og ögrandi að taka þátt í þessu fjáröflunarátaki með samstilltu átaki margra: ,,Það hefur verið ánægjulegt að reyna hve margir og ólíkir aðilar, bæði hér heima og erlendis, hafa verið reiðubúnir til að láta fé af hendi rakna til verkefnisins. Nefna má rausnarlegt framlag Lögþings Færeyja og færeyskra fyrirtækja, innlendra og erlendra félagasamtaka, fyrirtækja og sjóða og svo fjölda einstaklinga. Margir höfðu samband við okkur, m.a. eldra fólk, sem lét þess sérstaklega getið, hve umhugað því væri um að stofnuninni tækist ætlunarverk sitt. Okkur þótti einnig afar vænt um að fá stuðning til verkefnisins frá Tjörneshreppi, en sveitarfélagið lagði til 1.000 krónur frá hverjum og einasta íbúa hreppsins. Það segir meira en mörg orð um þann góða hug, sem fólk ber til Stofnunar Vigdísar og Háskólans.“

deila á facebook