Svala Guðmundsdóttir, aðjúnkt við Viðskiptafræðideild, varði doktorsritgerð sína við Capella University í Bandaríkjunum þann 19. desember síðastliðinn.
Heiti doktorsritgerðar Svölu er: Cross-cultural adjustment and individual differences for Nordic expatriates in the United States: the relationship between sociocultural adjustment, cultural intelligence, job satisfaction and prior experience.
Ritgerðin fjallar um menningarlega aðlögun norræna starfsmanna í Bandaríkjunum. Kannað var sambandið milli félags- og menningarlegrar aðlögunar, menningargreindar, starfsánægju og fyrri reynslu. Niðurstöður rannsóknarinnar er meðal annars hægt að nýta við val og þjálfun starfsmanna til starfa erlendis, auk þess sem niðurstöðurnar gefa tilefni til frekari fræðilegra rannsókna.
Leiðbeinendur voru Robert Rowden, PhD, Erla S. Kristjánsdóttir, PhD og James Krolik, PhD.
Svala Guðmundsdóttir er fædd árið 1969. Hún lauk BS prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002 og MS prófi í mannauðsstjórnun (Human Resource Management) frá University of Surrey í Englandi árið 2004.
Svala er gift Ólafi Sigurðsyni og eiga þau börnin Davíð, Söru, Snæfríði Önnu og Evu Sólveigu.
Starfsfólk Viðskiptafræðideildar óskar Svölu innilega til hamingju með doktorsprófið.
