Skip to main content
30. janúar 2016

Styrkur til rannsókna á gæðum reikningsskila

""

Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, og Sigurjón G. Geirsson, forstöðumaður áhættugreiningar hjá Fjármálaeftirlitinu, hljóta tveggja milljóna króna styrk úr Námsstyrkja- og rannsóknarsjóði Félags löggiltra endurskoðenda (FLE). Skrifað var undir samning þess efnis í vikunni. 

Styrkurinn nemur tveimur milljónum króna og rennur til rannsóknarverkefnis um gæði reikningsskila og mikilvæga forsenduþætti fyrir gæðum endurskoðunar. Fram kemur á heimasíðu FLE að verkefni Ásgeirs Brynjar og Sigurjóns byggist á rammaumgjörð Alþjóðlega staðlaráðsins (IAASB) um gæði endurskoðunar. Einnig verður byggt á skilgreiningum Alþjóðasamtaka löggiltra endurskoðenda (IFAC) á hlutverki og ábyrgð þeirra ólíku aðila sem mynda keðju sem ætlað er að tryggja að fjárhagsupplýsingar séu áreiðanlegar, nýtist við ákvarðanatöku og gefi rétta mynd af fjárhagsstöðu og rekstrarhæfi fyrirtækja. Markmiðið er að nýta umgjörð IAASB um gæði endurskoðunar og skilgreiningar IFAC um þætti sem áhrif geta haft á gæði reikningsskila og rannsaka í ljósi íslenskra aðstæðna. Á grundvelli rannsóknarinnar verður tekið saman efni sem nýtt verður í kennslu í endurskoðun á háskólastigi hérlendis.

Á heimasíðu FLE segir enn fremur að markmið Námsstyrkja- og rannsóknarsjóðs sé að efla bóklega menntun endurskoðenda með styrkjum til einstaklinga og stofnana og styrkja rannsóknir á sviði reikningshalds og endurskoðunar í þeim tilgangi að efla faglega umræðu um efnið.

Ásgeir Brynjar Torfason og Sigurjón G. Geirsson undirrita styrktarsamninginn ásamt Margréti Pétursdóttur, formanni Félags löggiltra endurskoðenda.
Ásgeir Brynjar Torfason og Sigurjón G. Geirsson undirrita styrktarsamninginn ásamt Margréti Pétursdóttur, formanni Félags löggiltra endurskoðenda.