Styrkur til meistaranema í íslenskri málfræði við HÍ

Verkefnið stuðlar að hagnýtri nýsköpun fyrir Háskóla Íslands
Verkefnið stuðlar að hagnýtri nýsköpun fyrir Háskóla Íslands

Kristín Lena Þorvaldsdóttir, meistaranemi í íslenskri málfræði, hefur hlotið viðurkenningu úr Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jóhannessonar. Styrkurinn nemur 200.000 þúsund krónum.

Meistaraverkefni Kristínar Lenu Þorvaldsdóttur, Próform, áttbeyging og hólf: Hugtakanotkun í málfræði táknmáls, felst í samræmingu og endurskoðun á hugtakanotkun í táknmálsfræði. Verkefnið liggur því á mörkum tveggja fræðasviða, táknmálsfræði og íslenskrar málfræði. Hugtök í táknmálsfræði eru mörg hver fengin að láni úr íslenskri málfræði og henta misvel. Önnur eru fengin úr erlendum málum og löguð að íslensku.

Markmið rannsóknarverkefnisins er að taka saman þau grunnhugtök sem notuð hafa verið fram að þessu innan táknmálsfræðinnar og samræma, endurskoða og leggja í nýyrðasmíð þar sem hennar er þörf. Mörg hugtök í íslenskri málfræði eru almenn málvísindaleg hugtök og eiga því jafnt við um raddmál og táknmál. Þegar ólík hugtök eru notuð yfir sama fyrirbæri getur það valdið þeim misskilningi að þau eigi við ólík fyrirbæri en í grundvallaratriðum er eðli raddmála og táknmála hið sama.

Skráning hugtaka og skilgreiningar á þeim verður unnin í samstarfi við Íslenska málfræðifélagið og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og því gefst kostur á að samræma hugtakanotkun í íslenskri málfræði og táknmálsfræði eftir því sem ástæða er til.

Verkefnið stuðlar að hagnýtri nýsköpun fyrir Háskóla Íslands og kemur skilgreining hugtaka m.a. til með að nýtast við greinaskrif, íðorðasöfn og kennslu. Niðurstaða verkefnisins verður nothæf tilraunaútgáfa hugtakabanka sem þróaður verður áfram á grundvelli fræðilegrar umræðu í kennslu og greinaskrifum við Háskóla Íslands.

Tilgangur Minningarsjóðs dr. phil. Jóns Jóhannessonar er að veita stúdentum eða kandídötum í íslensku og sagnfræði styrki til einstakra rannsóknarverkefna sem tengjast námi þeirra. Sjóðurinn var stofnaður árið 1983 til minningar um prófessor Jón Jóhannesson með gjöf ekkju prófessors Jóns, frú Guðrúnar Helgadóttur, og með minningargjöfum samstarfsmanna, nemenda, ættingja og vina hans.

Myndatexti frá hægri: Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði og formaður stjórnar, Kristín Lena Þorvaldsdóttir, meistaranemi í íslenskir málfræði og styrkhafi, Margrét Eggertsdóttir, rannsóknarprófessor við Stofnun Árna Magnússonar og Jón Atli Benediktsson, aðstoðarrektor vísinda og kennslu.


8.6.2010 16:06

deila á facebook
UI runs a Nordic super-...

A Nordic super-computer lab will be operated in Iceland in co-operation between the University of Iceland and three other Nordic institutions. Representatives of the University have finalised an agreement on running the lab for three years. The University of Iceland was among three Nordic...

Baldur Þórhallsson
Insignificant changes in...

“The objective of the study was to examine whether the economic collapse had changed the evaluation of interests regarding membership of the European Union among Icelandic political parties, and if they had changed their policies regarding membership in its aftermath”, says Baldur Þórhallsson,...

The Icelandic Economic...

Dr. Kristín Vala Ragnarsdóttir Dean of the School of Engineering and Natural Science will present the findings from a research that was done on the Icelandic
economic collapse. The name of the research is "The Icelandic Economic Collapse – A systems Dynamics Perspective."

The meeting...

Vilhjálmur Árnasons
Are Icelanders An Immoral...

Vilhjálmur Árnason, professor of philosophy at the University of Iceland, as well as chair of the board of the Centre for Ethics at the university, was interviewed in the May issue of The Grapevine, alternative magazine issued in English.