Styrkur til doktorsnáms í sagnfræði

Auglýst er eftir umsóknum til að vinna að doktorsritgerð í sagnfræði við Háskóla Íslands um eftirfarandi verkefni undir leiðsögn dr. Sverris Jakobssonar, aðjunkts:

Auðvald og útgerð í Breiðafirði, 1770-1960

Breyting varð á atvinnuháttum á Íslandi á síðustu áratugum 18. aldar og fyrstu áratugum þeirrar 19. Komið var á fót kaupstöðum og verslunargróðinn nýttur til fiskveiða með öflugri atvinnutækjum þiskipaútgerðarinnar. Breiðafjörður varð snemma ein af mikilvægustu miðstöðvum þiskipaútgerðarinnar og vélvædd útgerð náði þar einnig fótfestu í upphafi 20. aldar. Um miðja 20. öld var útgerð frá Breiðafirði hins vegar á fallanda fæti.

Markmið rannsóknarinnar er að greina orsakir þessarar þróunar. Ætlunin er að kanna uppgang þilskipaútgerðar í Breiðafirði, m.a. með hliðsjón af skrifum Ferdinands Braudels um þróun verslunarauðvalds fyrir daga iðnbyltingar. Einnig verður litið til rannsókna annarra fræðimanna á þróun kapítalisma, s.s. Marx, Schumpeters og Kondratievs, auk nýrri rannsókna fræðimanna á borð við Immanuel Wallerstein og Robert Brenner. Ætlunin er að hafa sérstaka hliðsjón af umhverfisþáttum en huga einnig að hliðstæðum í öðrum löndum, s.s. Noregi.

Rannsókn á verslun og útgerð í Breiðafirði er hugsuð sem almennt framlag til verslunar- og útgerðarsögu, auk þess sem henni er ætlað að nýtast sem hluti af stærra rannsóknarverkefni, sögu Breiðafjarðar á breiðum grundvelli. Sem þátttakandi í stærra rannsóknaverkefni mun doktorsneminn vinna með fræðismönnum sem hafa þegar lagt nokkuð til rannsókna á þessu sviði og munu aðstoða hann við að móta sínar eigin rannsóknaráherslur.

Verkefnið saga Breiðafjarðar hefur hlotið þriggja ára styrk úr Rannsóknasjóði. Doktorsneminn mun njóta launa úr Rannsóknasjóði sem nema u.þ.b. 265 þúsund krónum á mánuði í tvö ár og einn mánuð. Doktorsnám við Sagnfræði- og heimspekideild tekur að jafnaði þrjú ár. Stúdentinn fær aðstoð við að sækja um viðbótarfjármögnun í lok annars árs.

Umsækjandi skal uppfylla skilyrði til innritunar í doktorsnám í sagnfræði við Háskóla Íslands. Gögn sem staðfesta það skulu fylgja umsókninni, ásamt ítarlegri lýsingu (500-800 orð) á því hvernig hann hyggst nálgast rannsóknarefnið.Enn fremur skal umsækjandi senda inn: 

  • Ítarlega starfsferilsskrá - þar með talið staðfesta námsferilskrá við háskóla og ritaskrá.

  • Helstu rit á sviðinu, þ.m.t. námsritgerðir.

  • Tvö meðmælabréf send beint frá þeim sem gefur meðmælin til Sverris Jakobssonar, aðjunkts.

Gögn skulu merkt ,,Doktorsumsókn - Sverrir Jakobsson" og send Hugvísindasviði, b.t. Eiríks Smára Sigurðarsonar, Háskóla Íslands, Aðalbygging, 101 Reykjavík, fyrir 15. september 2011. Frekari upplýsingar veitir Sverrir Jakobsson (sverrirj@hi.is) eða Eiríkur Smári Sigurðsson (esmari@hi.is).

deila á facebook