Styrktarsjóður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur veitti styrki í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn föstudaginn 15. apríl. Til úthlutunar voru tvær milljónir króna sem skiptust á milli fimm verkefna.
Ársrit SVF fyrir árið 2010 "Milli mála" hlaut stærsta styrkinn að upphæð 880.000 kr. Ársrit SVF fyrir fyrir árið 2011 sem væntanlegt er, hlaut styrk að upphæð 440.000 kr. Júlían Meldon D'Arcy hlaut styrk að upphæð 300.000 kr til að gefa út tvímála útgáfu af ljóðabók Jónasar Þorbjarnarsonar sem nefnist "Hliðargötur". Bókin verður hluti af tvímála ritröð SVF í erlendum tungumálum. Birna Arnbjörnsdóttir hlaut styrk að upphæð 265.000 kr til að varðveita raunveruleg dæmi um vestur-íslensku en koma þarf hljóðdæmum af spólum yfir á rafrænt form og gera um leið fleirum kleift að stunda frekari rannsóknir og nota þessi gögn. Hólmfríður Garðarsdóttir hlaut 115.000 kr styrk vegna útgáfu tvímála bókar, "Yfir saltan mar: Þýðingar á ljóðum Jorge Luis Borgesar á Íslandi". Bókin verður hluti af tvímála ritröð SVF í erlendum tungumálum.
Það var Vigdís Finnbogadóttir, formaður sjóðsstjórnar, sem afhenti styrkina við athöfn í Hátíðasal Háskóla Íslands.
Sjá nánar um styrktarsjóðinn.
