Skip to main content
14. júní 2017

Styrkir til rannsókna í menntunar- og kennslufræðum

""

Styrktarsjóður Steingríms Arasonar auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Markmið sjóðsins er að efla sérfræðiþekkingu í menntunar- og kennslufræðum.

Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 2017.

Styrkir verða veittir til sérfræðinga eða nemenda í framhaldsnámi í menntunar- og kennslufræðum. Jafnframt má veita styrki til skiptináms.

Við úthlutun verður sérstaklega litið til:

  1. rannsókna sem fela í sér nýsköpun þekkingar á sviðinu
  2. þróunarverkefna sem efla fræðilegt og faglegt framlag á sviðinu
  3. skiptináms í menntunar- og kennslufræðum við erlenda háskóla

Heildarfjárhæð úthlutunar árið 2017 er allt að kr. 1.000.000.-

Í umsókn um styrk þurfa eftirtalin atriði að koma fram:

  • Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang, sími og virkt netfang.
  • Helstu atriði úr náms- og starfsferilsskrá umsækjanda.
  • Heiti verkefnis, markmið og vísindalegt gildi.
  • Hnitmiðuð lýsing á verkefninu, að hámarki 150 orð, sem verður nýtt til almennrar umfjöllunar og kynningar, hljóti verkefnið styrk.
  • Veigameiri lýsing á verkefninu, að hámarki ein blaðsíða, þar sem fram kemur lýsing á markmiðinu með verkefninu, framkvæmd þess og mati á afrakstri ásamt umfjöllun um hvernig verkefnið samrýmist markmiðum sjóðsins.
  • Tímaáætlun og fjárhagsáætlun verkefnis.
  • Ef um rannsóknarverkefni er að ræða skal gera grein fyrir helstu efnisþáttum þess.
  • Samstarfsaðilar verkefnis ef við á.
  • Hvernig styrkurinn verður notaður, hljóti verkefnið styrk.
  • Upplýsingar um annan fjárhagslegan stuðning.
  • Nöfn, símanúmer og netföng mögulegra meðmælenda.

Hámarkslengd umsóknar skal vera þrjár síður fyrir utan fylgiskjöl. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Stjórn sjóðsins áskilur sér rétt til að veita fleiri en einum umsækjanda styrk, hafna öllum og/eða úthluta styrkjum með öðrum hætti. Áhersla er lögð á vönduð fræðileg vinnubrögð við gerð umsóknar. Gert er ráð fyrir að styrkþegi skili sjóðnum skýrslu með helstu niðurstöðum og árangri af verkefninu þegar því lýkur.

Áætlað er að úthlutun fari fram í október 2017 við hátíðlega athöfn.

Umsóknum skal skila sem viðhengi á netfang Styrktarsjóða Háskóla Íslands: sjodir@hi.is.

Um sjóðinn

Sjóður Steingríms Arasonar hét áður Columbia-sjóður en hann var stofnaður með peningagjöf Steingríms Arasonar kennara árið 1939. Steingrímur (1879-1951) lauk kennaraprófi frá Flensborgarskóla árið 1908. Hann stundaði háskólanám í uppeldis- og menntunarfræði, fyrstur Íslendinga, við Teachers College í Columbia-háskóla í Bandaríkjunum (1915-1920). Hann starfaði við kennslu barna og unglinga í Eyjafirði og Reykjavík en aðalkennslustörf hans voru við Kennaraskólann þar sem hann kenndi í 20 ár.

""