Styrkir til meistaranema í íslenskum fræðum
Auglýst er eftir umsóknum til að vinna að tveimur meistaraprófsritgerðum í íslenskum miðaldafræðum undir leiðsögn einhvers af eftirtöldum kennurum: Ármanns Jakobssonar prófessors, Ásdísar Egilsdóttur prófessors, Terry Gunnell prófessors eða Torfa H. Tulinius prófessors.
Um er að ræða styrk í tvo mánuði fyrir hverja ritgerð, 420 000 kr. með launatengdum gjöldum. Verkefnin sem um ræðir eru hluti af rannsóknaverkefninu „Tekist á við yfirnáttúruna á Íslandi á miðöldum“ sem fékk styrk frá Rannsóknasjóði Rannís í desember 2011. Meistaraverkefnunum er lýst á eftirfarandi hátt í umsókn:
1. Tungumál hins annarlega: Rannsakandi mun beina sjónum að skáldskap sem eignaður er yfirnáttúrulegum verum, einkum í konungasögum og Sturlungu.
2. Kynferði og hið yfirnáttúrulega í íslenskum rómönsum: Einkum verður beint sjónum að sambandi kynferðis, galdra, hamskipta og öðrum skiptum við hið yfirnáttúrulega í frumsömdum riddarasögum.
Auk þess er gert ráð fyrir fjórum öðrum MA-verkefnum í verkefninu á næstu árum. Heiti þeirra eru:
a) Leiðslur í íslenskum miðaldabókmenntum,
b) útfarir, dauðinn og rými grafarinnar,
c) fylgjur,
d) veikindi, fötlun og hiðyfirnáttúrulega.
Til greina kemur að færa verkefni til milli ára ef önnur verkefni henta betur þeim meistaranemum sem ráðnir verða.
Umsækjendur skulu helst vera meistaranemar í íslenskum bókmenntum, íslenskum fræðum, íslenskum miðaldafræðum, medieval Icelandic studies, miðaldafræðum, norrænni trú, sagnfræði eða þjóðfræði, en umsóknir frá nemendum í skyldum greinum verða einnig athugaðar. Gögn sem staðfesta námið skulu fylgja umsókninni ásamt stuttri greinargerð (250-400 orð) um hugðarefni umsækjanda. Enn fremur skal hver umsækjandi senda inn: 1. Ítarlega starfsferilsskrá – þar með talið staðfesta námsferilskrá við háskóla og ritaskrá. 2. Helstu rit á sviðinu, þ.m.t. námsritgerðir. 3. Tvö meðmælabréf send beint frá þeim sem gefur meðmælin til Ármanns Jakobssonar, prófessors.
Gögn skulu merkt „Meistaranám – Tekist á við yfirnáttúruna“ og send Hugvísindasviði, b.t. Eiríks Smára Sigurðarsonar, Háskóla Íslands, Aðalbyggingu, 101 Reykjavík, fyrir 15. mars 2011. Frekari upplýsingar veitir Ármann Jakobsson (armannja@hi.is) eða Eiríkur Smári Sigurðarson (esmari@hi.is).
20.1.2012 15:13



