Stofnun Vigdísar þakkar frábæran stuðning
Að undanförnu hefur verið unnað að því ljóst og leynt að efla Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum sem þróttmikla rannsókna- og menningarstofnun, en hlutverk hennar er fyrst og fremst að stuðla að upplýstri umræðu um erlend tungumál og menningu í íslensku jafnt sem alþjóðlegu samhengi. Sérstök áhersla er lögð á að koma á fót alþjóðlegri tungumálamiðstöð innan vébanda stofnunarinnar og efla þannig jákvæð og árangursrík samskipti Íslands við umheiminn. Til að skapa þessu verkefni viðeigandi aðstæður og umgjörð er ætlunin að reisa byggingu Vigdísarstofnunar í nánd við gömlu Loftskeytastöðina við Suðurgötu. Byggingin mun hýsa fyrrgreinda starfsemi og alla kennslu og rannsóknir í þeim 14 erlendum tungumálum sem kennd eru við Háskóla Íslands auk heimasvæða fyrir sömu tungumál ásamt færeysku, grænlensku og samísku
Í tilefni af stórafmæli Vigdísar nú fyrir skömmu, og þess að hinn 29. júní voru 30 ár liðin frá sögulegu kjöri hennar, efndi Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur til afmælishátíðar og alþjóðlegrar vísindaráðstefnu í apríl. Þá kom einnig út fyrsta hefti ársrits stofnunarinnar, Mál málanna, í ritstjórn Magnúsar Sigurðssonar og Rebekku Þráinsdóttur.
Í tengslum við áðurnefnd tímamót voru áform stofnunarinnar kynnt í sérstöku átaki, sem stóð yfir dagana 19.-29. júní, en þá var jafnframt kallað eftir frjálsum fjárframlögum frá opinberum aðilum, fyrirtækjum, samtökum og öllum almenningi (www.vigdis.hi.is).
Viðbrögðin við átakinu hafa verið frábærlega góð og vill stofnunin koma á framfæri innilegu þakklæti til þeirra fjölmörgu, sem hafa stutt tungumálabyggingu stofnunar Vigdísar með beinum eða óbeinum hætti. Það hefur verið mikils virði að finna þennan góða hug í garð stofnunarinnar og hvatningu til að halda óhikað áfram þar til settu marki er náð. Þar sem fjármunir eru enn að skila sér inn til stofnunarinnar og ákvarðanir um styrki enn til skoðunar hjá nokkrum aðilum, hefur verið ákveðið að skýra frá afrakstri átaksins og næstu skrefum varðandi þetta viðamikla verkefni á fjölmiðlafundi, sem boðað verður til í ágúst.
16.7.2010 12:28




