Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna efna í dag til hádegismálþings í tilefni 100 ára afmæli Háskóla Íslands og 15 ára afmæli námsbrautar í kynjafræði. Yfirskrift þess er „Hernaðarlist og valdaklækir? – Er stjórnmálamenning samtímans tamari körlum en konum?“
Á málþinginu verður rætt hvort ríkjandi stjórnmálamenning sé tamari körlum en konum. Spurt verður hvort stjórnmálamenningin hafi breyst með aukinni þátttöku kvenna. Ef ekki, hvað þarf þá til að stjórnmálamenningin svari gagnrýni Rannsóknanefndar Alþingis með aukinni fagmennsku, málefnalegri rökræðum og breiðari samstöðu?
Bergljót Þrastardóttir, MA-nemi í opinberri stjórnsýslu, sem rannsakað hefur stjórnmálamenningu á sveitarstjórnarstigi, flytur stutt inngangserindi ásamt Kristínu Ástgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, fyrrverandi þingkonu Kvennalistans og meðhöfundi siðferðishluta skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.
Þær munu síðan rökræða efnið við stjórnmálamennina, Guðmund Steingrímsson þingmann, Óttarr Proppé borgarfulltrúa, Þórunni Sveinbjarnardóttur, fyrrverandi þingkonu, og Unni Brá Konráðsdóttur þingkonu. Fundarstjóri er Þorgerður Einarsdóttir, prófessor í kynjafræðum.
Málþingið fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands. Það hefst kl. 12 og er öllum opið.
