Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum (RIKK) stendur fyrir tveimur áhugaverðum viðburðum í dag og á morgun í samvinnu við aðila innan og utan háskólans.
Í dag, 7. september, kl. 14-16 stendur RIKK ásamt Heibrigðisvísindasviði fyrir málþinginu „Er konum mismunað innan vísindasamfélagsins?“ í sal Þjóðminjasafnsins. Tilefni málþingsins er heimsókn dr. Molly Carnes til Íslands, en hún hefur unnið að rannsóknum á því hvernig fjölga megi konum í leiðtogastöðum innan læknisfræða, verk- og raunvísinda.
Á málþinginu verður fjallað um hvort, og þá hvernig, konum er mismunað innan vísindasamfélagsins og greint frá stöðu kynjanna innan hinna ýmsu vísindagreina við Háskóla Íslands og upplifunum nemenda af námsumhverfi sínu.
Dr. Molly Carnes er prófessour í læknis- og iðnaðarverkfræði við Wisconsin-háskóla í Bandaríkjunum. Dr. Carnes hefur vakið athygli fyrir árangursríka aðferðafræði og útfærslu á leiðum til að tryggja jafnrétti og sporna við fordómum í ráðningarferlum. Hún hefur birt fjölda greina í vísindaritum og fengið margvíslega viðurkenningu fyrir störf sín í þágu kvenna.
Heimsþekktur rithöfundur flytur erindi í Norræna húsinu
Á morgun, fimmtudaginn 8. september, kl. 14:30-16:00 stendur RIKK svo að fyrir lestri hins heimsþekkta rithöfundar Nawal El Saadawi í samstarfi við Bókmenntahátíð í Reykjavík. Fyrirlesturinn verður í Norræna húsinu og ber titilinn „Creativity, Dissidence and Women“ eða „Sköpunarmáttur, andóf og konur“. Í fyrirlestrinum mun El Saadawi kanna merkingu þessara hugtaka og velta fyrir sér tengslum þeirra við trúarbrögð. Hún mun jafnframt ræða þá ógn sem harðstjórnum heimsins stafar af sköpunarmætti kvenna.
Nawal El Saadawi er rithöfundur, femínisti og mannréttindafrömuður. Hún fæddist í Egyptalandi árið 1931 og er menntaður læknir. Hún hefur gefið út fjöldamargar fræðibækur og skáldverk og er kúgun kvenna miðlægt umfjöllunarefni í höfundarverki hennar. Hún hefur lengi haldið uppi femínískri gagnrýni á trúarbrögð.
Árið 1988 neyddist El Saadawi til að flýja heimaland sitt sökum pólitískra ofsókna, meðal annars af hálfu íslamskra bókstafstrúarmanna. Hún gegndi gestaprófessorstöðu við ýmsa háskóla næstu ár, einkum í Bandaríkjunum, en sneri aftur til Egyptalands árið 1996.
