Hagfræðistofnun hefur gefið út Greinargerð um afföll íbúðalána við stofnun nýju bankanna og kostnað við niðurfærslu lána. Í október fól ríkisstjórnin Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að meta áhrif tillagna Hagsmunasamtaka heimilanna sem þau lögðu fram ásamt undirskriftalista með nöfnum 33.525 einstaklinga. Hagsmunasamtök heimilanna kröfðust meðal annars: „...almennra og réttlátra leiðréttinga á stökkbreyttum lánum heimilanna og afnáms verðtryggingar“ og lýstu í greinargerð fjórum mismunandi leiðum til leiðréttingar á lánum.
Í skýrslunni segir meðal annars, að þær leiðir sem Hagsmunasamtök heimilanna leggja til, feli í sér mikla höfuðstólslækkun lána til viðbótar við það sem þegar hefur verið gert. Áætla megi að hreinn kostnaður við leiðina, sem kveður á um flatan 18,7% niðurfærslu allra íbúðalána til viðbótar við það sem þegar hefur verið gert, sé um 200 milljarðar króna.
Greinargerðina unnu dr. Sigurður Jóhannesson og dr. Sveinn Agnarsson.
