Skyggnst inn í heim heilbrigðisvísinda

Gestum og gangandi er boðið á Háskólatorg á laugardaginn kemur að skyggnast inn í heillandi heim heilbrigðisvísindanna. Allt er þetta í boði nemenda á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands.Nemendur úr öllum deildum Heilbrigðisvísindasviðs taka þátt í dagskránni, að sögn Söru Lillýar Þorsteinsdóttur, læknanema og fulltrúa nemenda í afmælisnefnd Heilbrigðisvísindasviðs. 

„Þetta er frábær leið til þess að fræðast um nám og störf nemenda og ýmis verkefni sem þeir vinna að. Framhaldsskólanemendur í námshugleiðingum eru sérstaklega hvattir til að koma og kynna sér þessa fjölbreyttu dagskrá,“ segir Sara Lillý.

Dagskrá opna húss nemendanna verður þann 15. janúar milli klukkan 11-14 og kennir ýmissa grasa. Má þar nefna Skjöld, forvarnafélag hjúkrunarfræðinema, sem m.a. hefur farið með verkefnið „Sjálfsmynd unglinga“ í lífsleikniáfanga framhaldskóla. 

Einnig kynnir Ástráður, forvarnastarf læknanema, starfsemi sína og gefur góð ráð og tannlæknanemar kenna góða tannhirðu.  Ungmennadeild Blóðgjafafélags Íslands verður á staðnum og veitir fræðslu um mikilvægi blóðgjafa. 

Boðið verður upp á blóðþrýstingsmælingar, viðbragð kannað, fræðast um sykurmagn í fæðutegundum og ótal margt fleira. 

Bangsaspítalinn sívinsæli verður á staðnum og býður öllum börnum á aldrinum þriggja til sex ára að koma með dúkkurnar sína og bangsana í læknisskoðun.

deila á facebook