Skip to main content
24. apríl 2017

Skráning hafin á Menntakviku 2017

Opnað hefur verið fyrir skráningu og móttöku ágripa fyrir árlega ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntakvika; rannsóknir, nýbreytni og þróun, sem haldin verður þann 6. október nk. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í menntavísindum og á tengdum sviðum hverju sinni.

Metþátttaka var á síðustu Menntakviku en þá voru flutt rúmlega 260 erindi um fjölbreytt efni í 62 málstofum.

Á dagskrá ráðstefnunnar í ár verða málstofur og veggspjaldasýningar. Skipulag ráðstefnunnar verður með svipuðu sniði og áður en sérstök áhersla verður lögð á heildstæðar málstofur frá rannsóknarstofum eða -hópum.

Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum og á tengdum sviðum við Háskóla Íslands til þátttöku á ráðstefnunni en jafnframt starfsfólki frá stofnunum utan háskólans.Undirbúningur og framkvæmd Menntakviku er í höndum Menntavísindastofnunar.

Skráning er, eins og fyrr segir, hafin og búið er að opna fyrir móttöku ágripa. Skilafrestur ágripa er til 1. júní nk. Vinsamlega sendið ágrip inn hér.

Ráðstefnan er endurgjaldslaus og öllum opin.

Sjá nánar á vef Menntakviku

Menntakvika 2017