Skip to main content
2. maí 2016

Skráning hafin á Menntakviku

Opnað hefur verið fyrir skráningu og móttöku ágripa fyrir árlega ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntakvika; rannsóknir, nýbreytni og þróun. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem er efst á baugi í menntavísindum og á tengdum sviðum hverju sinni.

Ráðstefnan fór síðast fram í október 2015 og var þátttaka góð. Flutt voru rúmlega 200 erindi um fjölbreytt efni í 54 málstofum og um 20 veggspjöld voru til sýnis.

Á dagskrá ráðstefnunnar í ár verða málstofur og veggspjaldasýningar. Skipulag ráðstefnunnar verður með svipuðu sniði og áður en sérstök áhersla verður lögð á heildstæðar málstofur frá rannsóknarstofum eða -hópum.

Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum og á tengdum sviðum við Háskóla Íslands til þátttöku á ráðstefnunni en jafnframt starfsfólki frá stofnunum utan Háskólans. Undirbúningur og framkvæmd Menntakviku er í höndum Menntavísindastofnunar.

Skráning er, eins og fyrr segir, hafin og búið er að opna fyrir móttöku ágripa. Skilafrestur ágripa er til 10. júní 2016.

Ráðstefnan er endurgjaldslaus og öllum opin.

Menntakvika
Menntakvika