Skip to main content
7. maí 2015

Skiladagur BA-ritgerða er 11. maí

Skiladagur BA-ritgerða í deildum Hugvísindasviðs á vormisseri 2015 er mánudagurinn 11. maí. Ritgerðum er skilað á skrifstofu Hugvísindasviðs á 3. hæð í Aðalbyggingu. Eftir lokun skrifstofunnar er hægt að skila ritgerðum í pósthólf Hugvísindasviðs við lyftuna í Aðalbyggingu. Húsið er opið til kl. 18.

Nemendur  skila þremur eintökum af BA-ritgerðum. Með ritgerðunum skal fylgja staðfesting á að ritgerðin hafi verið vistuð á skemman.is (útprentaður tölvupóstur) ásamt útfylltu eyðublaði Landsbókasafns - háskólabókasafns um ráðstöfun ritgerðarinnar.

Sjá nánar á vef safnsins.

""
""