Skip to main content
1. júní 2017

Sigurður Magnús Garðarsson nýr forseti VON

""

Dr. Sigurður Magnús Garðarsson, prófessor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands, hefur verið ráðinn forseti Verkfræði- og náttúruvísindasviðs skólans. Sigurður Magnús var valinn úr hópi sex umsækjenda um starfið.

Sigurður Magnús lauk BS-prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og meistaragráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði 1993 og hagnýttri stærðfræði 1995, hvort tveggja frá University of Washington í Bandaríkjunum. Doktorsprófi í umhverfisverkfræði lauk Sigurður Magnús frá sama skóla árið 1997.

Sigurður Magnús starfaði um árabil sem ráðgjafaverkfræðingur í verkefnum á sviðum vatna- og straumfræði, fyrst í Bandaríkjunum og svo hér heima, og var ráðinn dósent í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands árið 2003 og prófessor árið 2007. 

Sigurður Magnús hefur í rannsóknum sínum lagt áherslu á rannsóknir tengdar endurnýjanlegri orku, þá sérstaklega vatnsaflsvirkjanir, vatna- og straumfræði ásamt rannsóknum á neysluvatnsgæðum.  Hann hefur birt fjölda vísindagreina og tekið þátt í fjölmörgum innlendum og erlendum rannsóknaverkefnum og meðal annars leitt rannsóknaverkefnið GEORG um alþjóðlegan rannsóknaklasa í jarðhita sem er styrkt af markáætlun Vísinda- og tækniráðs en að GEORG starfa 22 innlendir og erlendir aðilar.

Sigurður Magnús hefur gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórnunarstörfum innan Háskóla Íslands. Hann var skorarformaður Umhverfis- og byggingarverkfræðiskorar á árunum 2007-2008, deildarforseti Umhverfis- og byggingarverkfræðideildar 2008-2014 og hefur verið varaforseti deildarinnar frá þeim tíma. Sigurður Magnús hefur verið formaður Gæðanefndar háskólaráðs frá byrjun árs 2015. Á árunum 2015-2016 leiddi Sigurður Magnús ásamt aðstoðarrektor kennslu og þróunar stýrihóp sem vann að nýrri stefnu Háskóla Íslands fyrir árin 2016-2021 og hefur unnið að innleiðingu hennar með aðstoðarrektor frá samþykki stefnunnar. 

Sigurður Magnús Garðarsson tekur við starfi forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands af Hilmari Braga Janussyni þann 1. júlí nk.

Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands er eitt af fimm fræðasviðum Háskóla Íslands. Það skiptist í sex deildir: Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, Jarðvísindadeild, Líf- og umhverfisvísindadeild, Rafmagns- og tölvuverkfræðideild, Raunvísindadeild og Umhverfis- og byggingarverkfræðideild.

Sigurður Magnús Garðarsson