Sigurður Ingi Árnason var ráðinn verkefnisstjóri á kennslusviði frá 1. mars 2011. Starfið felur í sér skipulag og framkvæmd prófahalds, úrvinnslu talnagagna og önnur tengd verkefni.
Sigurður stundaði nám við Háskóla Íslands í félagsfræði og lauk MA prófi 2010.
Sigurður kemur úr starfi hjá Reykjavíkurborg þar sem hann var sérfræðingur á framkvæmda- og eingasviði Borgarinnar. Sigurður hefur einnig starfað við verslun, sem verslunarstjóri og sölufulltrúi hjá A4 skrifstofu og Rúmfatalagernum.
Kennslusvið og prófstjórn hefur aðsetur í Aðalbyggingu við Sæmundargötu og hefur Sigurður netfangið sia7@hi.is og síma 525 5278.
Háskóli Íslands býður Sigurð velkominn til starfa.
