Skip to main content
2. desember 2016

Siðfræðikver eftir Vilhjálm Árnason

""

Út er kominn bókin Siðfræðikver eftir Vilhjálm Árnason, prófessor í heimspeki við Hugvísindasvið. 

Í bókinni færir Vilhjálmur rök fyrir því að siðferðilegar rökræður séu skynsamleg leið til þess að jafna siðferðilegan ágreining. Enn fremur sýnir hann fram á að hægt sé að rökstyðja siðferðilegar ákvarðanir með tilvísun í verðmæti og siðalögmál sem eru hafin yfir einstaklingsbundinn smekk án þess að hafna í siðferðilegri lögmálshyggju. Siðfræðikver kynnir fyrir lesendum hvernig þessi tvö fyrirbæri, rökræður og ákvarðanir, eru höfuðatriði í siðferðilegu lífi og að þau eru samofin.

Háskólaútgáfan gefur bókina út.

Vilhjálmur Árnason og bókin siðfræðikver
Vilhjálmur Árnason og bókin siðfræðikver