Sendiherra Frakklands í heimsókn

Nýr sendiherra Frakklands á Íslandi, Marc Bouteiller, heimsótti Háskóla Íslands á dögunum og átti fund með Kristínu Ingólfsdóttur, rektor háskólans, og Jóni Atla Benediktssyni, aðstoðarrektor vísinda og kennslu.

Með Bouteiller í för voru Luc Fuhrmann, sendiráðunautur í franska sendiráðinu, og Arnaud Serniotti, menningar- og vísindafulltrúi sendiráðsins.

Á fundinum var rætt um samstarf Háskóla Íslands og franskra háskólastofnana í vísindum og kennslu.  Franska hefur lengi verið kennd við Háskóla Íslands og rannsóknasamstarf HÍ og franskra háskóla hefur aukist verulega á undanförnum áratug. Til marks um það má nefna að sex nemendur hafa á síðustu þremur árum brautskráðst með sameiginlega doktorsgráðu frá Háskóla Íslands og frönskum háskólum, fleiri en frá nokkru öðru landi.

Mörg tækifæri eru til að efla samstarfið enn frekar, m.a. með styrkjum úr rammaáætlunum Evrópusambandsins. Frakkar og Íslendingar hafa einnig í allmörg ár átt í samstarfi um svokallaða Jules Verne styrki. Tilgangurinn er að virkja vísinda- og tæknisamstarf milli stofnana, skóla og rannsóknahópa í báðum löndunum og að auðvelda samstarf við önnur slík samstarfsverkefni í Evrópu.


deila á facebook