Skip to main content
26. febrúar 2015

Samspil ljóss og myrkurs og áhrif þess á samfélög

Samspil lista og vísinda, myrkurs og ferðamennsku er í aðalhlutverki á alþjóðlegu ráðstefnunni Hreyfiafl myrkurs í norðrinu sem fram fer í Háskóla Íslands og Norræna húsinu 26.-28. febrúar. Um er að ræða  þverfræðilegan lista- og fræðiviðburð sem er hluti af metnaðarfullri dagskrá á Alþjóðlegu ári ljóssins. Ráðstefnan er skipulögð af Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands, The International Laboratory for the Multidisciplinary Study of Representations of the North við Québec-háskóla í Montreal og Listaháskóla Íslands í samvinnu við Norræna húsið í Reykjavík, Sendiráð  Kanada á Íslandi og Centre de recherche interuniversitaire sur la littérature et la culture québécoises.

„Ráðstefnan sprettur upp af áhuga á samspili ljóss og myrkurs og áhrifum  þess á samfélög og menningu á norðurslóðum,“ segir Gunnar Þór Jóhannesson, dósent í ferðamálafræði við Líf- og umhverfisvísindadeild og einn af skipuleggjendum ráðstefnunnar. „Okkur fannst mikilvægt að reyna að draga saman ólíkt fólk sem er að vinna að þessu viðfangsefni og skapa samræður þvert á fræðigreinar. Það kemur líka í ljós að myrkur  birtist á margan hátt og ef til vill er það meira hreyfiafl í samfélagi okkar en við erum vön að hugsa það. Alþjóðlegt ár ljóssins ýtti svo við okkur að framkvæma þessa hugmynd á þessum tíma.“

Dagskrá ráðstefnunnar er glæsileg og fjölbreytt. „Fyrst ber að nefna þrjá aðalfyrirlesara ráðstefnunnar, þau Dr. Tim Edenson frá Manchester Metropolitan University, Harald Jónsson, myndlistarmann og stundakennara við Listaháskóla Íslands og Tiffany Ayalik sem er kanadísk sviðslistakona, sem kristalla í sjálfu sér þverfagleika viðburðarins,“ segir Gunnar.

Á ráðstefnunni er mjög fjölbreytt úrval erinda svo allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi að sögn Gunnars. „Þar má nefna erindi um ljósmengun í Reykjavík, kynjaða orðræðu norðurljósaferða, áhrif samspils ljóss og myrkurs á heilsu fólks og myrkurkima mannssálarinnar. Nokkrar stuttmyndir verða á dagskrá sem varpa ljósi á líf fólks á norðurhjara þar sem myrkur og ljós togast á. Enn fremur verða listaverk til sýnis í Norræna húsinu eftir íslenska og erlenda listamenn sem fanga hreyfiafl myrkurs á ólíkan hátt. Til dæmis munu þær Þorgerður Einarsdóttir og  Elísabet Indra Ragnarsdóttir verða með hljóðverk um myrkur.“

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna og erindi á henni má finna á heimasíðu Alþjóðlegs árs ljóssins

Myrkrið og norðurljósin koma mjög við sögu í vetrarferðamennsku á Íslandi.
Myrkrið og norðurljósin koma mjög við sögu í vetrarferðamennsku á Íslandi.