Skip to main content
15. febrúar 2016

Saga Breiðafjarðar eftir Sverri Jakobsson

Út er komin bókin Saga Breiðfirðinga I eftir Sverri Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands. Í bókinni segir frá höfðingjum og lærdómsmönnum við Breiðafjörð, eins og Ara fróða, en einnig bændum, konum, húskörlum og ambáttum, pólitískri sögu þeirra, lífsháttum og afkomu. Útkoman er saga sem aldrei hefur verið sögð áður.

Þegar Ari fróði settist við skriftir á fyrri hluta 12. aldar beindist áhugi hans sérstaklega að Breiðfirðingum, hans eigin forfeðrum, hlutdeild þeirra í landnáminu og forystu í málefnum héraðsins. Síðan þá hafa Breiðfirðingar alltaf verið í lykilhlutverki í sagnaritun Íslendinga. Breiðafjörður hefur auk þess sérstöðu meðal héraða á Íslandi hvað varðar stjórnmál, menningu og atvinnuhætti. Þar hefur sjórinn verið þjóðbraut fremur en farartálmi, samnefnari og tenging fremur en sundrandi afl.

Eftir Sverri Jakobsson hafa áður komið út bækurnar Við og veröldin. Heimsmynd Íslendinga 1100–1400 og fræðileg útgáfa Hákonar sögu Hákonarsonar.

""
""