Robert D. Putnam flytur erindi í HÍ

Bandaríski stjórnmálafræðingurinn dr. Robert David Putnam, prófessor við John F. Kennedy School of Government við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum, flytur erindi í Hátíðasal Háskóla Íslands mánudaginn 3. október kl. 12:00-13:30. Dr. Putnam er öndvegisfyrirlesari Félagsvísindasviðs á aldarafmæli Háskóla Íslands og erindi hans markar upphaf afmælismánaðar sviðsins þar sem boðið verður upp á fjölbreytta viðburði.

Dr. Putnam er heimsþekktur stjórnmálafræðingur sem gegndi um tíma stöðu forseta John F. Kennedy School of Government við Harvard-háskóla. Hann hefur gefið út fjölda bóka, þar á meðal bækurnar „Making Democracy Work“ og „Bowling Alone: The Collapse and Revival of American Community“ sem eru meðal þeirra rita í félagsvísindum sem mest hefur verið vitnað til.

Dr. Putnam hefur enn fremur verið ráðgjafi þjóðarleiðtoga á borð við Bill og Hillary Clinton, Barack Obama, George W. Bush, Tony Blair, Gordon Brown og Nicolas Sarkozy.

Fyrirlestur dr. Putnams ber titilinn „Challenges to community in the contemporary world:  Social capital, diversity, and inequality“. Hann er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.

deila á facebook