Út er komið ritið Law & Religion in the 21st Century — Nordic Perspectives (Kaupamannahöfn, Djøf Publishing , 638 bls.).
Hjalti Hugason prófessor við guðfræði- og trúarbragðafræðideild ritar kafla í bókina um trúfrelsi og þjóðkirkjuskipan á Íslandi. Í kaflanum fjallar Hjalti um þróun og sérleika íslensku kirkjuskipanarinnar í samanburði við tengsl ríkis og kirkju á hinum Norðurlöndunum.
Ritið er afrakstur norræns samstarfsverkefnis á sviði trúarbragðaréttar og fjallar um trúfrelsi, sem og stöðu trúarbragða og trúfélaga á Norðurlöndum í ljósi sívaxandi einstaklingshyggju. Ritið er aðgengilegt á Háskólabókasafni.
