Alþingi samþykkti í dag lög sem kveða á um að táknmál verði fyrsta mál heyrnarlausra, heyrnarskertra og daufblindra og afkomenda þeirra sem þurfa að reiða sig á það til tjáningar og samskipta. Táknmálstúlkur Háskóla Íslands segir daginn risavaxinn fyrir samfélag heyrnalausra.
Samkvæmt hinum nýsamþykktu lögum ber stjórnvöldum að hlúa að táknmáli og styðja það. Hver sem hafi þörf fyrir það skuli eiga þess kost að læra og nota íslenskt táknmál jafnskjótt og máltaka hefst eða frá þeim tíma sem heyrnarleysi, heyrnarskerðing eða daufblinda hefur greinst.
„Þetta er risavaxinn dagur fyrir samfélag heyrnalausra og 20 ára barátta er loks að skila árangri,“ segir Sigrún Edda Theódórsdóttir, táknmálstúlkur Háskóla Íslands. „Ég hóf sjálf nám í táknmálsfræðum við Háskóla Íslands árið 1994 og þá var mikið rætt um það að lög um táknmál sem fyrsta mál heyrarlausra yrðu samþykkt á næstunni,“ rifjar Sigrún upp. Þess má geta að Svandís Svavarsdóttir, núverandi umhverfisráðherra, kenndi táknmálsfræði við háskólann á þeim tíma.
„Aðgengi heyrnalausra að upplýsingum í samfélaginu verður væntanlega mun betra með þessum lögum og þar á ég bæði við upplýsingar um það sem er að gerast í samfélaginu og einnig námsefni fyrir heyrnarlausa, en það hefur verið af skornum skammti hingað til,“ segir Sigrún.
„Síðasta haust fjölgaði heyralausum nemendum um helming og þeir eru nú 11 talsins á öllum sviðum háskólans. Við vonumst til þess að þessar breytingar styrki þau og efli enn frekar í sínu námi,“ segir Sigrún.
