Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands (RIKK) efnir til alþjóðlegrar ráðstefnu dagana 4.-5. nóvember í tilefni af 20 ára afmæli stofnunarinnar og 100 ára afmæli Háskóla Íslands. Ráðstefnan ber yfirskriftina „Þræðir og fléttur: Menning, samfélag og umhverfi“.
„Um 90 fræðimenn og sérfræðingar af ólíkum fræðasviðum munu taka þátt. Fjallað verður um allt milli himins og jarðar er viðkemur kynjafræðum, t.a.m. Dominique Strauss-Kahn málið, uppgjörið við hrunið, konur í skáldskap karla, Tobbu Marinós og bókmenntastofnunina, hernámssögur og ástandskonur, ítalska kvenfútúrista, kynjajafnrétti í Kína, eldhúsið sem pólitískt rými, villimenn og víkinga, konur í friðargæslunni, eiginkonur föðurlandssvikara og sögur 13 rauðsokka,“ segir Hildur Fjóla Antonsdóttir, verkefnisstjóri hjá RIKK, í samtali við afmælisvef Háskóla Íslands.
Ráðstefnan í ár skiptist í 20 málstofur með þátttöku fræðimanna af ólíkum fræðasviðum. Athygli er vakin á sérstakri öndvegismálstofu til minningar um framlag kvenna til stofnunar Háskóla Íslands og í tilefni af aldarafmæli laga um rétt kvenna til náms og embætta. Í málstofunni verður leitað svara við spurningunni: Hverju hefur menntun kvenna skilað?
Fræðimenn á heimsmælikvarða
„Við val á lykilfyrirlesurum var ákveðið að bjóða fræðimönnum á heimsmælikvarða af ólíkum fræðasviðum sem allir eiga það sameiginlegt að beita kynjafræðinni til að greina áleitin viðfangsefni samtímans,“ segir Hildur Fjóla enn fremur.
Lykilfyrirlesararnir eru þrír:
Cynthia Enloe, stjórnmálafræðingur og prófessor við Clark-háskóla í Bandaríkjunum, en erindi hennar ber yfirskriftina „The Strauss-Kahn Affair: The Cultures and Structures of Masculinity“. Enloe er heimsþekkt fyrir femíníska greiningu sína á hervæðingu, stríðum, stjórnmálum og hnattvæðingu efnahagskerfa og hefur stundað rannsóknir í Írak, Afganistan, Bandaríkjunum, Bretlandi, Japan, Filippseyjum, Kanada, Chile og Tyrklandi.
Joni Seager, prófessor í hnattrænum fræðum við Bentley-háskóla í Boston, flytur erindið „Death by Degrees: Making Feminist Sense of the 2° Climate Change Target“. Seager stundar femínískar rannsóknir á sviði landfræði, alþjóða- og umhverfismála. Hún er afkastamikil fræðikona og hefur birt fjölda greina og bóka. Hún hefur einnig starfað sem ráðgjafi hjá Sameinuðu þjóðunum og unnið þar að verkefnum er varða umhverfismál og stefnumótun í vatnsmálum.
Beverly Skeggs, prófessor í félagsfræði við Goldsmiths, London-háskóla flytur fyrirlesturinn „Rethinking Respectability: the moral economy of person value?“ Skeggs er höfundur bókanna „Formations of Class and Gender: Becoming Respectable“, „Class, Self, Culture“ og „Feminism after Bourdieu“. Hún hefur fært rök fyrir mikilvægi stéttar í mótun kynjaðra sjálfsmynda og því gildi sem einstaklingum er gefið í samtímamenningu.
Dagskrá ráðstefnunnar má finna á vef RIKK.
Afmælisráðstefna RIKK er haldin í samstarfi við Reykjavíkurborg, umhverfisráðuneytið, Jafnréttisstofu, Kvennasögusafnið, Alþjóðamálastofnun, Stofnun Sæmundar fróða, EDDU – öndvegissetur og Alþjóðlegan jafnréttisskóla við Háskóla Íslands. Hún er öllum opin.
