Rannsóknir kynntar á Þjóðarspegli

Ein af stærri ráðstefnum í Háskóla Íslands ár hvert, Þjóðarspegillinn - Ráðstefna í félagsvísindum, hófst nú í morgun húsakynnum háskólans og stendur í allan dag.

Þar koma saman fræðimenn og nemendur innan og utan skólans og kynna og miðla því sem efst er á baugi í rannsóknum í félagsvísindum á Íslandi þessi misserin. Í ár verða fluttir 144 fyrirlestrar á 39 málstofum um efni allt frá þjóðfræði miðalda til afleiðinga efnahagshrunsins.

Fjöldi fyrirlestranna er til vitnis um fjölbreytt og öflugt rannsóknarstarf á sviði félagsvísinda hér á landi og eru fyrirlesarar í fremstu röð hver á sínu sviði. Í tengslum við ráðstefnuna verður veggspjaldasýning í Gimli og Háskólatorgi þar sem fjölmargir fræðimenn, meistara- og doktorsnemar kynna rannsóknir sínar.

Yfirlit og ágrip úr fyrirlestrunum er að finna á heimasíðu Félagsvísindastofnunar.

Viðtöl við tvo af fyrirlesurunum má sjá á afmælisvef Háskóla Íslands.

deila á facebook