Rannsóknarstofa um háskóla kynnt
Rannsóknastofa um háskóla hélt kynningarfund og málstofu fimmtudaginn 2. september í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Stofan er starfrækt við Menntavísindasvið en í stjórn hennar sitja Anna Ólafsdóttir lektor, Guðrún Geirsdóttir dósent og varaformaður, Gyða Jóhannsdóttir dósent og ritari, Páll Skúlason prófessor og formaður og Jón Torfi Jónasson prófessor og forseti Menntavísindasviðs.
Markmið rannsóknarstofunnar eru að stuðla að rannsóknum á háskólum og starfsemi þeirra, halda til haga niðurstöðum íslenskra rannsókna á háskólum þannig að þær séu á hverjum tíma aðgengilegar, stuðla að aukinni fræðslu um háskóla á meðal fræðimanna, stjórnvalda og almennings og efla skilning á gæðum og gildum háskólastarfs. Stjórn stofunnar óskar eftir samstarfi við allt áhugafólk í íslensku fræðasamfélagi um að vinna að þessum markmiðum.
Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, flutti ávarp og opnaði vefsíðu stofunnar. Þá kynntu Anna Ólafsdóttir og Jón Torfi Jónasson vefsíðuna, ráðstefnu CHER (Consortium of Higher Education Researchers) sem haldin verður á vegum stofunnar í júní 2011 og rannsóknarverkefni og styrk sem mennta- og menningarmálaráðherra veitti stofunni nýverið.
Germain Dondelinger, yfirmaður háskólamála í ráðuneyti menningar, æðri menntunar og rannsókna í Lúxemborg, hélt erindið Quality and Quality Assurance in Higher Education: the European Debate.
Skyggnur frá erindi Dondelinger.
Páll Skúlason fjallaði um hlutverk og starfshætti háskóla og varpaði fram spurningum þar um. Í lokin fóru fram pallborðsumræður um málefni háskóla sem Gyða Jóhannsdóttir stýrði. Þátttakendur í pallborði voru Allyson Macdonald prófessor, Guðmundur Heiðar Frímannsson prófessor, Hellen Gunnarsdóttir skrifstofustjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti og Rúnar Vilhjálmsson prófessor.
Fundarstjóri var Guðrún Geirsdóttir.
7.9.2010 13:21





