Rannsókn á tengslum unglinga við foreldra og vini

Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, Rannsóknarstofnun í barna og fjölskylduvernd, Meðferðarheimilið Laugaland og Reynir-ráðgjafastofa standa um þessar mundir að rannsókn á félagslegum tengslum unglinga. Mikilvægur hluti þessarar rannsóknar er fyrirlögn og í kjölfarið stöðlun matslista á tengslum ungs fólks við móður, föður og vini (IPPA – Inventory of Parent and Peer Attachment).

Tengsl barna og unglinga við foreldra sína og vini eru mikilvæg fyrir vellíðan þeirra og aðlögun í samfélaginu. Rannsóknir hafa meðal annars sýnt fram á að samvera foreldra og unglinga skipti miklu máli sem forvörn gegn neyslu áfengis og annarra vímuefna. Hins vegar er minna vitað um eðli og gæði félagslegra tengsla ungmenna hér á landi. Stöðlun þessara matslista mun veita betri innsýn í eðli tengslanna og auka við skilning á sambandi þeirra við margvíslega þætti í lífi ungs fólks. Um leið verður unnt að gera samanburð á eðli tengsla barna í vanda við tengsl barna almennt og þannig munu listarnir nýtast við skerpingu á íhlutun og meðferð.

Atli Hafþórsson meistaranemi við Félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands vinnur að framkvæmd rannsóknarinnar en ábyrgðarmaður er Halldór Sig. Guðmundsson, lektor.

deila á facebook