„Feður taka meira þátt í lífi barna sinna og eru ekki bara fyrirvinna heimila, jafnframt því sem börn fá að njóta bernskunnar lengur og taka almennt ekki hlutverk fyrirvinnunar. Okkur fannst þetta þarft efni sem og áhugavert til að fjalla um,“ segir Ásdís Ýr Arnardóttir, verkefnisstjóri hjá Félagsráðgjardeild, um viðburð sem deildin stendur fyrir í hádeginu á morgun, þriðjudaginn 18. október. Viðburðurinn er liður í afmælisdagskrá Félagsvísindasviðs vegna aldarafmælis Háskóla Íslands og einnig í tilefni af 30 ára kennsluafmælis Félagsráðgjafardeildar. Hann ber yfirskriftina „Börn, feður og fjölskyldutengsl - þrælkun, þroski, þrá“.
Ætlunin er að flétta saman fyrirlestur og ljósmyndir um börn, vinnu og feður. Sigrún Sigurðardóttir, menningarfræðingur og aðjúnkt við Listaháskóla Íslands, mun hefja dagskrána og fjalla um tilurð ljósmynda Guðbjarts Ásgeirssonar af börnum við vinnu á sjó og í landi en myndirnar eru til sýnis á fyrstu hæð Háskólatorgs. Ljósmyndunum er ætlað að opna umræðu og hvetja fólk til að skoða fortíðina í nýju samhengi. Þær vekja upp spurningar er varða viðhorf til barnavinnu, aðbúnað og vinnuskilyrði barna og samskipti sjómanna og barna. Sigrún mun leiða gesti um sýninguna.
Að því loknum mun Anni G. Haugen, lektor við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, fjalla um feður í barnavernd og þar á eftir verða pallborðsumræður þar sem Anni, Ingólfur V. Gíslason, dósent í félagsfræði, Páll Ólafsson félagsráðgjafi og Sigrún Sigurðardóttir sitja fyrir svörum. „Pallborðsumræðurnar gefa tækifæri til þess að ræða við ólíka sérfræðinga. Þessir aðilar eiga það allir sameiginlegt að hafa unnið með eða kynnt sér sérstaklega málefnið í sínu fagi – hver á sinn hátt,“ segir Ásdís Ýr.
Viðburðurinn „Börn feður og fjölskyldutengsl - þrælkun, þroski, þrá“ fer fram í stofu 101 á Háskólatorgi og stendur á milli kl. 11:40 og 13:10. Hann er öllum opinn meðan húsrúm leyfir.
Viðtal við Ásdísi Ýr má nálgast á afmælisvef Háskóla Íslands.
