„Í fyrirlestrinum er ætlunin að draga upp mynd af fjármálakerfi framtíðarinnar fyrir Ísland, eða a.m.k. leitast við að svara nokkrum spurningum um það hvernig það getur orðið og hvernig æskilegt væri að það yrði,“ segir Gylfi Magnússon, dósent við Viðskiptafræðideild, um erindi sitt á málstofu á vegum deildarinnar á morgun, þriðjudaginn 11. október. Þetta er þriðja og síðasta málstofan í málstofuröð Viðskiptafræðideildar, sem haldin er í tilefni af aldarafmæli Háskóla Íslands. Umræðuefnið morgundagsins er: Framtíð íslensks fjármálamarkaðar.
Sviptingar undanfarinna ára hafa gerbreytt íslenskum fjármálamarkaði. Myndin sem blasti við haustið 2008 var ekki björt en eftir því sem tiltektinni eftir hrun gamla fjármálakerfisins vindur áfram er smám saman að koma í ljós mynd af nýju fjármálakerfi, sem mun þjóna íslensku efnahagslífi næstu áratugina. Á málstofunni verður meðal annars reynt að skýra þessa mynd, draga fram að hvaða leyti nýja fjármálakerfið stendur á traustari stoðum en það gamla og hvaða tækifæri bjóðast fjárfestum og sparifjáreigendum.
Gylfi bendir á að sumum spurningum tengdum framtíð íslensk fjármálamarkaðar sé ekki gott að svara enda mikil óvissa, m.a. um þróun hins alþjóðlega fjármálakerfis um þessar mundir. „Þó liggur fyrir að íslenskt fjármálakerfi þarf að þjóna og mun þjóna ýmsum grundvallarþörfum hagkerfisins, m.a. daglegri greiðslumiðlun, miðlun fjármagns frá sparifjáreigendum til lántaka og dreifingu áhættu. Það er frekar álitamál hve mikil umsvifin við þetta verða og hve mikið fjármálakerfið mun gera þessu til viðbótar" segir Gylfi.
Auk Gylfa munu fjármálakennarar Viðskiptafræðideildar og nokkrir framámenn í íslensku fjármálalífi draga upp framtíðarsýn fyrir íslenskan fjármálamarkað.
Fyrirlesarar eru:
Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðsins
Gylfi Magnússon dósent
Kristján Jóhannsson lektor
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans
Vilhjálmur Bjarnason lektor
Málstofan hefst kl. 12 þriðjudaginn 11. október í Hátíðasal Háskóla Íslands. Hún er öllum opin meðan húsrúm leyfir.
