Pistill rektors: Vísindamiðlun

Tímarit Háskóla Íslands kom út fyrir síðustu helgi í tilefni af Háskóladeginum, en þá opnaði skólinn dyr og kynnti starfsemi sína fyrir framhaldsskólanemum og almenningi. Í tímaritinu eru á þriðja hundrað greinar og viðtöl við starfsfólk og stúdenta sem bregða upp svipmyndum af því fjölbreytta starfi sem fram fer á öllum fræðasviðum skólans. Tímaritið, sem er undir ritstjórn Markaðs- og samskiptasviðs, er liður í upplýsingamiðlun háskólans og ætlað að gefa innsýn í kennslu, rannsóknir og mannlíf innan skólans.

Í samskiptum og upplýsingamiðlun teygir Háskóli Íslands sig til fleiri skólastiga og leggur áherslu á að glæða áhuga ungs fólks á vísindum og fræðum. Vísindavefurinn hefur verið starfræktur frá árinu 2000 og er nú einn fjölsóttasti vefur landsins. Háskóli unga fólksins hefur verið haldinn árlega frá 2004 eftir að kennslu og prófum lýkur á vorin. Í tilefni aldarafmælis Háskóla Íslands á síðasta ári stóðu kennarar og doktorsnemar að Háskóla unga fólksins víðs vegar á landsbyggðinni. Önnur dæmi um verkefni sem tengjast ungmennum eru Tilraunalandið, í samstarfi við Norræna húsið og Reykjavíkurborg, og LEGO-hönnunarkeppnin þar sem keppendur hanna og smíða tölvustýrt vélmenni og forrita til að leysa þrautir. Það síðarnefnda er samstarfsverkefni Verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og Nýherja, Verkfræðingafélags Íslands, Samtaka iðnaðarins og Matís. Þá er Háskóli Íslands einn bakhjarla Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Í haust hóf skólinn samstarf við Björk Guðmundsdóttur og Reykjavíkurborg um tónvísindasmiðju Biophiliu, en þar er unnið að samþættingu tónlistar, vísinda, tölvutækni og móðurmáls fyrir börn á aldrinum 10−12 ára.

Í tengslum við Háskóladaginn síðastliðinn laugardag var opnuð Vísindasmiðja Háskóla Íslands. Markmið hennar er að glæða áhuga ungs fólks á náttúruvísindum, raunvísindum og tækni. Vísindasmiðjan verður jafnframt vettvangur fræðslu- og endurmenntunar fyrir raungreinakennara í grunnskólum. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, opnaði Vísindasmiðjuna með því að hjóla á orkureiðhjóli og framleiða þannig rafmagn til að kveikja á ljósaperum. Reiðhjólið er eitt af mörgum tækjum Vísindasmiðjunnar sem Orkuveita Reykjavíkur hefur af rausnarskap gefið Háskóla Íslands, en tækjabúnaðurinn var áður í Rafheimum Orkuveitunnar í Elliðaárdal. Háskóli Íslands er afar þakklátur fyrir þessa gjöf, því hún veitir tækifæri til að koma til móts við þörf og ákall frá atvinnulífi og menntamálayfirvöldum um átak í miðlun vísinda og nýsköpunar til íslenskra ungmenna. 

Vísindasmiðjan er til húsa í Háskólabíói þar sem skrifstofur Sinfóníuhljómsveitar Íslands voru áður, og er auðkennd með myndum af tilraunaglösum, smásjám, eldflaugum, stjörnusjónaukum o.fl. Tekið verður á móti fyrstu skólahópunum í byrjun mars og bíðum við þeirra með mikilli tilhlökkun.

21. febrúar 2012

Kristín Ingólfsdóttir

rektor

deila á facebook