Í haust býður Háskóli Íslands upp á þverfaglegt námskeið um áhrif hugmynda Noam Chomskys á rannsóknir og umræðu í mannlegum fræðum. Efnt verður til vikulegra funda á föstudögum kl. 11:40-14:00, þar sem fyrri hluti verður nokkurs konar hádegiserindi og opinn öllum en undir lok hvers tíma verður megináhersla á umræður með þátttöku þeirra nemenda sem skrá sig formlega í námskeiðið.
Umræðurnar snúast um áhrif Chomskys á rannsóknir á ýmsum þáttum mannlegra fræða og umræðu um þá, svo sem málfræði, sálfræði, mannfræði, félagsfræði, stjórnmál og stjórnmálaheimspeki. Reynt verður að láta umræðuefnin mynda eðlilega heild eftir því sem kostur er (sjá kennsluáætlun). Lesefni fyrir hverja kennslustund verður aðgengilegt á Uglunni (innri vef Háskóla Íslands) fyrir þá sem eru skráðir í námskeiðið, en til hliðsjónar verður höfð bókin The Cambridge Companion to Chomsky (ritstj. James McGilvray, útg. Cambridge University Press, 2005). Í þeirri bók eru yfirlitskaflar yfir öll helstu fræðileg viðfangsefni Chomskys, allt frá máli og mannshuga til stjórnmála. Vísað verður í einn eða fleiri kafla í þessari bók í tengslum við flesta fyrirlestra, en auk þess í greinar og bókarkafla eftir því sem við á hverju sinni.
Höskuldur Þráinsson hefur umsjón með námskeiðinu en aðrir fyrirlesarar eru Noam Chomsky, Árni Kristjánsson, Ástráður Eysteinsson, Birna Arnbjörnsdóttir, Eiríkur Rögnvaldsson, Giorgio Baruchello, Gísli Pálsson, Guðni Elísson, Hrafnhildur Ragnarsdóttir, Jóhannes Gísli Jónsson, Jón Ólafsson, Jörgen Pind, Kristján Árnason, María Kristjánsdóttir, Matthew Whelpton, Mikael M. Karlsson, Sigríður Sigurjónsdóttir, Sigrún Júlíusdóttir, Þórhallur Eyþórsson.
Kennslan fer fram í stofu 104 á Háskólatorgi. Fyrirlestur Chomskys sjálfs verður þó í Sal 2 í Háskólabíói. Fyrirlestrarnir hefjast kl. 11:40 nema annað sé auglýst. Fyrirlestur Chomskys hefst þó kl. 12:00.
Yfirlit yfir viðfangsefni og dagsetning fyrirlestra
1. vika (2. september): Inngangur og upphaf (HT104, kl. 11:40)
Ástráður Eysteinsson: Noam Chomsky, öndvegisfyrirlesari Hugvísindasviðs.
Höskuldur Þráinsson: Málfræðibylting Chomskys.
Jörgen Pind: Chomsky og hugfræðibyltingin í sálfræði.
2. vika (9. september): Maður, mál og sál 1 (H2, kl. 12:00)
Noam Chomsky: The 'Generative Enterprise': its origins, goals, prospects.
3. vika (16. september): Maður, mál og sál 2 (HT104, kl. 11:40)
Árni Kristjánsson: Meðfæddar hugmyndir og erfðahyggja.
Sigríður Sigurjónsdóttir: Máltaka barna og meðfæddur málhæfileiki.
4. vika (23. september): Maður og samfélag 1 (HT104)
Mikael M. Karlsson: Þjóðfélags- og stjórnmálagagnrýni Chomskys
5. vika (30. september): Maður, mál og sál 3 (HT104)
Gísli Pálsson: Nim Chimpsky et al.: Fólk og aðrir prímatar
Þórhallur Eyþórsson: Málkunnátta og algildismálfræði
6. vika (7. október): Maður, mál og sál 4 (HT104)
Matthew Whelpton: Mál og merking.
Eiríkur Rögnvaldsson: Mál og texti.
7. vika (10.–14. október): Verkefnavika
8. vika (21. október): Maður, mál og sál 5 (HT104)
Birna Arnbjörnsdóttir: Tileinkun annars máls.
Hrafnhildur Ragnarsdóttir: Máltaka og málumhverfi.
9. vika (28. október): Maður, mál og sál 6 (HT104)
Kristján Árnason: Chomsky og/eða Halliday.
Jóhannes Gísli Jónsson: Flatneskja eða frumskógur? Hversu lík eru tungumál heims þegar grannt er skoðað?
10. vika (4. nóvember): Maður og samfélag 2 (HT104)
María Kristjánsdóttir: „Nauðsynlegar blekkingar“
11. vika (11. nóvember): Maður og samfélag 3 (HT104)
Sigrún Júlíusdóttir: Staða, völd og áhrif einstaklingsins.
12. vika (18. nóvember): Maður og samfélag 4 (HT104)
Giorgio Baruchello: Chomsky and McMurtry: The theory and practice of capitalism.
13. vika (25. nóvember): Maður og samfélag 5 (HT104)
Jón Ólafsson og Guðni Elísson: Chomsky sem stjórnmálaheimspekingur og aðgerðasinni.
