Skip to main content
25. ágúst 2015

Nýtt rit um stjórnskipunarrétt eftir Björgu Thorarensen

Bókaútgáfan Codex hefur gefið út ritið Stjórnskipunarréttur. Undirstöður og handhafar ríkisvalds eftir Björgu Thorarensen lagaprófessor. Í bókinni er fjallað með heildstæðum hætti um undirstöður og einkenni stjórnskipunar Íslands, meðferð ríkisvalds og takmörk þess. Markmið bókarinnar er að greina helstu grunnhugtök og kenningar sem stjórnskipunin hvílir á og hvernig þær birtast í störfum þriggja handhafa ríkisvalds, löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds. Rannsóknin beinist að stórum hluta að stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944, forsögu hennar, inntaki og túlkun. Þá er lýst óskráðum reglum og venjum sem ásamt leikreglum stjórnmálanna mynda hina efnislegu stjórnskipun. Gerður er samanburður við þróun og stöðu stjórnskipunar annarra Evrópuríkja með áherslu á Norðurlönd.

Bókin skiptist í tvo hluta. Í fyrri hlutanum er sjónum beint að undirstöðum og einkennum stjórnskipulagsins. Rannsakaðar eru helstu kenningar og hugtök sem liggja til grundvallar stjórnkerfum vestrænna lýðræðisríkja. Hlutverk og staða íslensku stjórnarskrárinnar er greind m.a. í ljósi sögulegs uppruna hennar. Ítarlega er lýst ört vaxandi áhrifum alþjóðasamvinnu á íslenskan rétt og stjórnskipun á síðustu áratugum, einkum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og Mannréttindasáttmála Evrópu. Í síðari hluta bókarinnar er sýnt fram á hvernig hugmyndafræðilegar undirstöður birtast í störfum æðstu handhafa ríkisvalds. Gerð er grein fyrir stjórnskipulegri stöðu og störfum Alþingis, ríkisstjórnar og ráðherra og forseta Íslands. Þá er rannsakað hvernig eftirlit og aðhald með ríkisvaldi birtist. Dómaframkvæmd er rakin með áherslu á eftirlitshlutverk dómstóla til að tempra vald annarra handhafa ríkisvalds.

Bókin er ætluð þeim sem vinna að rannsóknum í stjórnskipunarrétti og framkvæmd stjórnskipunarreglna í þingstörfum og stjórnmálum, stjórnsýslu og dómskerfinu svo og þeim sem stunda háskólanám í lögfræði, stjórnmálafræði eða öðrum félagsvísindum og hugvísindum.

Björg Thorarensen er prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Hún hefur ritað fjölmargar greinar og bækur á sviði stjórnskipunarréttar, þjóðaréttar og mannréttinda þar á meðal ritið Stjórnskipunarréttur. Mannréttindi frá 2008 sem myndar ásamt riti þessu heildstæða útgáfu um stjórnskipunarrétt.

Bókin er 769 bls. og er hún fáanleg hjá Bóksölu Úlfljóts, Lögbergi, og Bóksölu stúdenta, Háskólatorgi og í Háskólanum í Reykjavík.

Bókakápa bókarinnar Stjórnskipunarréttur. Undirstöður og handhafar ríkisvalds
Björg Thorarensen
Bókakápa bókarinnar Stjórnskipunarréttur. Undirstöður og handhafar ríkisvalds
Björg Thorarensen