Nýtt háskólaráð Háskóla Íslands
Skipað hefur verið nýtt háskólaráð Háskóla Íslands og kom það í fyrsta sinn saman fullskipað 2. september. Hlutverk háskólaráðs Háskóla Íslands er skilgreint í lögum um opinbera háskóla og er því, ásamt rektor, falin stjórn Háskólans. Háskólaráð markar heildarstefnu, mótar skipulag, fer með almennt eftirlit með starfseminni í heild og ber ábyrgð á því að Háskólinn starfi í samræmi við lög.
Fulltrúar háskólasamfélagsins, tilnefndir af háskólaþingi, eru þau Anna Agnarsdóttir, prófessor við Sagnfræði- og heimspekideild, Börkur Hansen, prófessor við Uppeldis- og menntunarfræðideild og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lektor við Hagfræðideild. Varamenn þeirra eru Gunnlaugur Björnsson, vísindamaður við Raunvísindastofnun HÍ, Hákon Hrafn Sigurðsson, dósent við Lyfjafræðideild og Soffía Auður Birgisdóttir, sérfræðingur við Fræðasetur Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði.
Af heildarsamtökum nemenda eru tilnefnd Fannar Freyr Ívarsson, meistaranemi í lögfræði og Guðrún Sóley Gestsdóttir hagfræðinemi. Varamenn eru Margrét Arnardóttir, nemandi í lífeindafræði og Boði Logason, nemandi í stjórnmálafræði.
Fulltrúar tilnefndir af mennta- og menningarmálaráðherra eru Guðrún Hallgrímsdóttir verkfræðingur og Pétur Gunnarsson rithöfundur. Varamenn eru Þorfinnur Skúlason íslenskufræðingur og Ragnheiður Hulda Proppé mannfræðingur.
Þrír fulltrúar eru tilnefndir af háskólaráði: Hilmar B. Janusson, efnafræðingur og framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs Össurar hf., Sigríður Ólafsdóttir, lífefnafræðingur og ráðgjafi hjá SÓL ráðgjöf og Þórður Sverrisson, viðskiptafræðingur og forstjóri Nýherja. Sameiginlegur varamaður þeirra þriggja er Sigríður Valgeirsdóttir, líffræðingur og framkvæmdastjóri Roche NimbleGen.
Forseti háskólaráðs er Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla íslands. Varaforseti er Börkur Hansen prófessor.
3.9.2010 08:17




