Skip to main content
13. nóvember 2015

Nýsköpun eflir öll svið heilbrigðisþjónustu

""

„Nýsköpun í heilbrigðisvísindum eru ekki bara ný tæki og tól heldur einnig nýir verkferlar, leiðir til að bæta viðmót við sjúklinga og samfélagið. Nýsköpun getur bætt almenna andlega líðan einstaklinga meðan þeir njóta þjónustunnar, ekki síður en greiningu sjúkdóma og meðferð þeirra,“ sagði Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra við setningu nýsköpunarráðstefnu Heilbrigðisvísindasviðs á Hótel Sögu þann 12. nóvember sl. Þrjátíu fjölbreytt verkefni voru kynnt á ráðstefnunni fyrir ríflega 100 þátttakendum.

Mörg framsæknustu fyrirtækin í íslensku atvinnulífi tengjast með beinum eða óbeinum hætti rannsóknum á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands og annarra opinberra rannsóknarstofnana og samstarf þeirra á milli hvetur til nýsköpunarverkefna innan háskólanna. Það var því sérstaklega ánægjulegt úr hversu mörgum áttum þátttakendur á ráðstefnunni komu. 

Vísindafólk frá flestum deildum og námsbrautum Heilbrigðisvísindasviðs kynnti hugmyndir og verkefni á ráðstefnunni ásamt fjölda fólks af öðrum vettvangi. Má þar nefna Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands, Raunvísindastofnun Háskólans, Háskólann í Reykjavík, Listaháskóla Íslands, Landspítala - háskólasjúkrahús, Blóðbankann, Össur og fjölda annarra fyrirtækja og stofnana.

Verkefnin sem kynnt voru því af ólíkum toga. Það var til dæmis fjallað um hvernig má nota sýndarveruleika til þess að kanna líðan þéttbýlisbúa, hvernig má ráða aldur barna af tannþroska þeirra, hvaða aðferð má beita til þess að auka hitaþolni lyfja, hvernig mætti nota útrunnar blóðflögur til þess að rækta stofnfrumur, hvernig sérstök dúkka getur aukið jafnvægi ungabarna og hvernig megi auka öryggismenningu á vinnustöðum.

Tatjana Latinovic, deildarstjóri hugverkadeildar Össurar, flutti ávarp og sagði frá því hvernig nýsköpunarferlinu hjá Össuri er háttað og hvernig fyrirtækið stendur að vernd hugverka.

Ráðstefnan fór fram í fjórum málstofum: Þær voru: tækni í þágu heilsu; nýsköpun og líðan einstaklingins; nýjar aðferðir í öndvegi; og frá grunnvísindum til afurða. Þá fór einnig fram veggspjalda- og vörusýning. Fulltrúar frá Hugverkanefnd Háskóla Íslands og Landspítala voru einnig á staðnum og veittu upplýsingar um starfsemi nefndarinnar og gestum gafst tækifæri á að prófa sérstakan áhættureikni fyrir augnsjúkóma.

Í riti sem gefið var út í tilefni ráðstefnunnar er að finna heiti verkefna, nöfn höfunda og ágrip allra þeirra spennandi nýsköpunarverkefna sem kynnt voru. Skoða ráðstefnuritið fyrir Nýsköpun á Heilbrigðisvísindasviði.

Skoða myndir frá ráðstefnunni.

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, við setningu nýsköpunarráðstefnu Heilbrigðisvísindasviðs 2015.